Innlent

Lögregla leitar tveggja manna

Atli Ísleifsson skrifar
Mennirnir sem lögreglan vill ná tali af.
Mennirnir sem lögreglan vill ná tali af. Lögregla

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum, sem birtast á myndinni að ofan, og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu eða í síma 444 1000.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að ef einhver þekkir til mannanna, eða veit hvar þá sé að finna, eru hin sömu einnig vinsamlegast beðin um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×