Leirvogsá er heldur meira krefjandi en Úlfarsá og þegar hún er aðeins bólgin af rigningarvatni á vorin getur veiðin verið mjög góð enda best að veiða sjóbirting við þessi skilyrði í ánni. Magnús og Björn Hlynur voru við veiðar í Leirvogsá í fyrradag voru þeir búnir að landa hoplaxi og tveimur flottum birtingum, en þeir settu líka í fleiri fiska sem þeir misstu. Veiði hófst í Leirvogsá síðastliðin laugardag þann 1. apríl. Úlfarsá fór af stað á laugardaginn líka, þá veiddust fimmtán hoplaxar og þrír birtingar. SVFR sem er leigutaki beggja ánna biður veiðimenn um að gleyma ekki að skrá aflann í rafrænu veiðibókina inná heiumasíðu SVFR.

Hér er frásögn frá þeim félögum: "Við félagar vorum við veiðar í Leirvogsá Mánudaginn 3. apríl. Það var mikill vindur og helli demba alveg frá því að við byrjuðum um morguninn . Það var heitt yfir daginn en vindurinn sá um að kæla okkur niður, fengum tvo fiska við stað 198 ( Nýbúi ) og misstum einn vænan líka á sama stað. Eftir klukkan 15 urðu miklar veðurbreytingar og áin for að vaxa og hún var orðin lituð og stóðum við félagar ekki það langt frá veiðistaðnum ármótum í miðju skýfalli. "