Enn ein afsökunarbeiðnin frá dómurum til Brighton Arnar Geir Halldórsson skrifar 9. apríl 2023 11:31 Víti! vísir/Getty Enska dómarasambandið hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna dómaramistaka í leik Tottenham og Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Kaoru Mitoma, sóknarmaður Brighton, átti augljóslega að fá dæmda vítaspyrnu þegar Pierre Emile Hojbjerg, miðjumaður Tottenham, braut á Mitoma innan vítateigs en Stuart Attwell, dómari leiksins, dæmdi ekkert. Michael Salisbury var dómarinn í VAR herberginu og brást algjörlega en Attwell var ekki sendur í skjáinn til að skoða atvikið betur. BREAKING! The PGMOL has admitted a mistake was made by the match officials and VAR when not awarding a penalty to Brighton in Saturday's Premier League game against Tottenham.— Sky Sports News (@SkySportsNews) April 9, 2023 Leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham en staðan var jöfn, 1-1, þegar atvikið með Mitoma átti sér stað. Brighton menn voru ósáttir með fleiri ákvarðanir dómaranna í leiknum en tvö mörk voru dæmd af liðinu svo eitthvað sé nefnt. Um var að ræða gríðarlega mikilvægan leik í baráttunni um Evrópusæti. Brighton hafa verið afar óheppnir með dómgæslu á tímabilinu en þetta er í þriðja sinn sem dómarasambandið sér sig knúið til að biðjast afsökunar á mistökum sem bitnað hafa á Brighton. This is all #BHAFC need to hand to @premierleague and @FA_PGMOL with a request for an explanation pic.twitter.com/bQIT76M7Sm— North Stand Chat (@NorthStandChat) April 8, 2023
Enski boltinn Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Sjá meira