Innlent

Meintur fíkni­efna­sali reyndist hár­greiðslu­maður

Árni Sæberg skrifar
Lögreglan sá ekkert að því að maður sinnti hárgreiðslu gegn greiðslu í gærkvöldi.
Lögreglan sá ekkert að því að maður sinnti hárgreiðslu gegn greiðslu í gærkvöldi. Nastasic/Getty

Tilkynnt var um sölu fíkniefna í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Vínlandsleið í Grafarholti í gærkvöldi. Þegar laganna verði bar að garði reyndist meintur fíkniefnasali vera blásaklaus hárgreiðslumaður. „Átti málið því ekki við rök að styðjast,“ segir í dagbók lögreglu.

Samkvæmt dagbókarfærslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir gærkvöldið og nóttina fór skemmtanahald að mestu leyti friðsamlega fram á höfuðborgarsvæðinu í nótt.

Verkefni lögreglunnar voru að mestu leyti tengd umferð og akstri undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Tilkynnt var um unga drengi að fara inn í grunnskóla í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu. Drengirnir voru farnir á brott þegar lögregla kom á vettvang en þeir höfðu þegar valdið eignaspjöllum.

Þá var tilkynnt um mann reyna að komast inn í bíla í einu af bílastæðahúsum borgarinnar. Óvíst er hvort honum hafi orðið kápan úr því klæðinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×