Innlent

„Sárin eru mjög djúp og þau gróa mjög hægt“

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Sigurður Örn mun funda með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í næstu viku.
Sigurður Örn mun funda með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í næstu viku. Réttur

Forsætisráðherra mun funda með lögmanni aðstandenda fórnarlamba snjóflóðanna á Súðavík í næstu viku. Lögmaður segir sárin mjög djúp og þau grói hægt vegna þess að málið fékk ekki viðeigandi skoðun á sínum tíma.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur boðað Sigurð Örn Hilmarsson, lögmann aðstandenda þeirra sem létust í snjóflóðunum í Súðavík árið 1995 á fund í næstu viku. Aðstandendurnir hafa í áratugi reynt að fá rannsókn á þætti stjórnvalda í flóðinu. Það er vegna vísbendinga um að ekki hafi verið brugðist rétt við, hvorki í aðdraganda flóðsins né eftir það, eins og greint er frá í nýlegri umfjöllun Heimildarinnar.

„Aðstandendur og mínir umbjóðendur vilja fyrst og fremst réttlæti. Að snjóflóðið og atburðarásin í kringum það verði gert upp með hreinskiptnum hætti,“ segir Sigurður Örn. Það er að skipuð verði rannsóknarnefnd sem fari yfir öll mál tengd snjóflóðinu.

Átta af fjórtán voru börn

Fjórtán manns létust, þar af átta börn, þegar flóðið féll á sex hús við Túngötu og Nesveg í Súðavík. Bent hefur verið á að hættumati hafi ekki verið fylgt, brýnar snjóflóðavarnir ekki reistar og upplýsingum um flóðahættu haldið frá íbúum. Þá hafi viðvaranir um byggingu húsa, sem lentu í flóðinu, verið hunsaðar.

„Þó að það séu liðin 28 ár frá snjóflóðunum í Súðavík er erindi þeirra mjög brýnt. Það er ánægju efni að forsætisráðherra hafi brugðist við með skjótum hætti,“ segir Sigurður.

Stjórnvöld hugðust lyfta grettistaki í ofanflóðavörnum eftir snjóflóðin á Súðavík og Flateyri um miðjan tíunda áratuginn.Brynjar Gauti

Hingað til hafa stjórnvöld hafnað kröfu um óháða rannsókn. Auk þess að senda erindi á forsætisráðherra hefur Sigurður Örn sent erindi á stjórnskipunar og eftirlitsnefnd Alþingis. En sú nefnd sér um rannsókn mála sem þessa. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður nefndarinnar, hefur lýst yfir vilja til að hefja rannsókn á flóðinu í Súðavík.

Ólíðandi að peningur fari annað

Sigurður segir augljóst að kerfið hafi brugðist fólkinu á Súðavík. „Sárin eru mjög djúp og þau gróa mjög hægt. Meðal annars vegna þess að öll þessi mál fengu ekki viðeigandi skoðun á sínum tíma,“ segir Sigurður. Á samtölum sínum við sína umbjóðendur sér hann að þessir voveiflegu atburðir hefðu allt eins getað gerst í gær.

Málið eigi líka skírskotun í nútímann því að ofanflóðamál séu alls ekki komin í lag. Flóðin í Neskaupstað nýverið séu áminning um það.

Eftir hin mannskæðu snjóflóð í Súðavík og Flateyri var stefna stjórnvalda að lyfta grettistaki í byggingu snjóflóðavarna á Íslandi. Svo sem á Vestfjörðum, Tröllaskaga og Austfjörðum. Mikið hefur verið gert en einnig hefur verið bent á að sá peningur sem eyrnamerktur hefur verið ofanflóðavörnum hafi ekki farið í málaflokkinn. Framkvæmdum sem átti að vera lokið eru áratugi frá því að klárast.

Sigurður Örn segir knýjandi sé að íslensk stjórnvöld fari yfir þessi mál í heild sinni og dragi af þeim lærdóm til að minnka líkurnar á að sagan endurtaki sig. „Peningarnir sem áttu að fara í þetta verkefni eru farnir eitthvað annað og það er ólíðandi,“ segir hann.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×