Innlent

Gæsirnar mun færri en í venjulegu ári

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Mikil fækkun virðist í stofni heiðagæsa þetta árið.
Mikil fækkun virðist í stofni heiðagæsa þetta árið. Mike Powles/Getty Images

Mun færri gæsir virðast hafa lagt leið sína hingað til lands í vor en í venjulegu ári, í það minnsta á Suðausturlandi

Brynjúlfur Brynjólfsson starfsmaður Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands segir í samtali við Morgunblaðið að á því svæði sem þeir fylgist með megi greinilega sjá fækkun. Sérstaklega er mikil fækkun á heiðagæs að mati Brynjúlfs sem segir að aðeins helmingur hafi skilað sér í vor, miðað við undanfarin ár.

Þá hafi bændur á stórum jörðum furðað sig á því hversu fáar gæsir hafi komið og telur Brynjúlfur að stofninn gæti verið allt að einn þriðji af því sem hann er venjulega án þess að hann geti fullyrt um aðra landshluta. Einnig er mun minna um álft nú miðað við venjulega.

Ennfremur segir Brynjúlfur að fuglaflensan sem nú geisar hafi leikið aðrar tegundir grátt, sérstaklega helsingjann og skúminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×