Innlent

Flug­lita­kóðinn aftur grænn en ó­vissu­stig á­fram í gildi

Atli Ísleifsson skrifar
Kröftug jarðskjálftahrina hófst í norðausturhluta öskjunnar í Kötlu klukkan 9:41 í gærmorgun. Henni lauk þó rúmri klukkustund síðar.
Kröftug jarðskjálftahrina hófst í norðausturhluta öskjunnar í Kötlu klukkan 9:41 í gærmorgun. Henni lauk þó rúmri klukkustund síðar. Vísir/RAX

Mælingar Veðurstofnnar benda til þess að virknin í Kötluöskju teljist nú til eðlilegrar bakgrunnsvirkni eldstöðvarinnar. Ákveðið hefur verið að færa fluglitakóðann aftur niður á grænan. Óvissustig almannavarna er þó áfram í gildi og náið verður fylgst með þróun mála í Mýrdalsjökli.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar þar sem fram kemur að eftir samráðsfund vísindamanna á Veðurstofunni bendi gögn til þess að um hafi verið að ræða snarpa jarðskjálftahrinu í gær, en slíkar hrinur eru þekktar í Kötlu.

„Rúmlega 40 skjálftar hafa mælst síðasta sólarhringinn, þar af þrír skjálftar yfir 4 af stærð. Skjálftarnir voru þó óvenju stórir og fara þarf aftur til ársins 2016 til að finna sambærilega hrinu og nú.

Fluglitakóðinn fyrir Kötlu hefur verið færður aftur niður á grænan. Óvissustig Almannavarna er áfram í gildi og náið verður fylgst með þróun mála í Mýrdalsjökli,“ segir í færslunni.

Þá segir á vef lögreglu að ákveðið hafi verið að aflétta lokun á veginum inn að Kötlujökli.

Tengist vatni og jarðhita

Kröftug jarðskjálftahrina hófst í norðausturhluta öskjunnar í Kötlu klukkan 9:41 í gærmorgun. Þrír skjálftar yfir fjórum að stærð mældust, sá stærsti 4,5 klukkan 9:52. Ekki gerðist þó mikið eftir klukkan 11 í gær.

Kristín Jónsdóttir, fagstjóri náttúruvár hjá Veðurstofunni, sagði í samtali við fréttastofu í gær virknin hafi verið þannig að skjálftarnir hafi verið fremur grunnir. Því mætti telja líklegast að skjálftarnir sem urðu hafi tengst jarðhita og vatni, frekar en kvikuhreyfingum.


Tengdar fréttir

Allt með kyrrum kjörum í Mýr­dals­jökli

Skjálftahrinan sem hófst í gærmorgun í Mýrdalsjökli virðist vera afstaðin en skjálftakort Veðurstofu Íslands sýnir aðeins einn lítinn skjálfta á svæðinu frá miðnætti.

„Við erum bara róleg ennþá“

Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshreppur, segir einhverja íbúa í Vík og annars staðar í Mýrdalshreppi hafa fundið fyrir skjálftunum í Kötluöskju í morgun. Hann sé þó ekki einn þeirra. „Við erum bara róleg ennþá og ýmsu vön.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×