Frændur og ungir feður: Búa til ævintýri þar sem söguhetjan eru börnin sjálf Rakel Sveinsdóttir skrifar 8. maí 2023 07:00 Sölvi Víðison og Björgvin Smári Halldórsson eru systkinabörn sem höfðu lengi talað um að gera eitthvað saman. Þegar þeir voru báðir orðnir feður ákváðu þeir að slá til og fara að gefa út sérhannaðar bækur fyrir börn, eins og Sölvi hafði séð að vinsælar væru í Danmörku. Hér má sjá Sölva með dóttur sinni Sólrúnu Lilju, sem er einmitt söguhetja bókar þar sem börnunum er kennt um íslensku húsdýrin og afkvæmi þeirra. Vísir/Vilhelm „Dóttir mín elskar að lesa. Og mér finnst mjög annt um þann tíma sem ég les með henni því þetta er ákveðin gæðastund. Hún vill samt mikið stjórna því hvað við erum að lesa og þar af leiðandi erum við oft að lesa sömu bækurnar. Ég vissi að hún myndi elska að eiga bók með nafninu sínu þar sem hún væri sjálf í aðalhlutverki,“ segir Sölvi Víðisson, annar stofnandi Ævintýri.is, en þar er hægt að panta sérhannaðar bækur fyrir hvert barn.
Þegar bókin er keypt er valið um nafn barnsins sem verður aðalsögupersónan í ævintýrinu, húðlit, hárlit og hárgreiðslu. Þá er hægt að skrifa skilaboð sem birtast síðan í bókinni. Þegar pöntun er frágengin, fer bókin í prentun og er ýmist sótt eða send heim. „Þegar að dóttir mín var yngri bjuggum við í Danmörku og þar voru þessar bækur út um allt. Þær eru ekki aðeins vinsælar þar heldur líka fyrirferðarmiklar í auglýsingum.. Mig langaði í svona bók fyrir dóttir mína og það var þannig sem hugmyndin kviknaði á því að búa til svona bækur á íslensku, með íslenskum ævintýrum sem eru helst svolítið fræðandi,“ segir Sölvi. Frændur og ungir feður Meðstofnandi Sölva er frændi hans, Björgvin Smári Halldórsson. Sölvi segir þá frændur lengi hafa talað um að gera eitthvað saman og í fyrra hafi þeir síðan ákveðið að slá til með að búa til og gefa út svona sérsniðnar barnabækur. Enda báðir orðnir feður sjálfir. Dóttir Sölva heitir Sólrún Lilja og er fimm ára. Synir Björgvins eru tveggja og hálfs árs tvíburar sem heita Trausti og Halldór. „Ég kynnist þessum bókum haustið 2019 þegar að ég var í meistaranámi í Danmörku. En kunni ekki dönsku og þaðan af síður dóttir mín. Reyndar fór það þannig að hún var enga stund að ná dönskunni en það tók mig lengri tíma,“ segir Sölvi og hlær. Í samtölum við Björgvin frænda sinn fór hann að segja honum frá þessum bókum. Sölvi kláraði námið á Íslandi, enda breytti Covid náminu í fjarnám. Við fórum þá að tala meira um þetta því þá var Björgvin líka orðinn pabbi og strákarnir hans orðnir níu eða tíu mánaða gamlir. Hann var því kominn á svipaðan stað og ég að kynnast þessum heimi barnabóka og lesturs.“ Sölvi segir þá frændur svo sem ekkert hafa verið að pæla alvarlega í þessu fyrr en vorið 2021 þegar þeir veltu fyrir sér hvort þeir ættu kannski að láta slag standa. „Við ákváðum á endanum að gera þetta bara. Sem auðvitað reyndist mun flóknara en við höfðum áttað okkur á. Hugmyndin var til dæmis fyrst sú að fá teiknara til að teikna fyrstu bókina og reyna að gefa hana út fyrir jólin 2021. Sem var ekki raunhæft því teikningarnar voru ekki einu sinni tilbúnar fyrr en í febrúar 2022.“ Sölvi segir það hversu langan tíma fyrsta bókin tók og hversu margar gryfjurnar voru sem þeir frændur féllu í hafi á endanum reynst dýrmæt reynsla. „Í dag er að taka okkur þrjá mánuði að gefa út eina bók, enda tvær í vinnslu.“ Sölvi og Björgvin búa til ævintýrin sjálfir og reyna að byggja þau upp þannig að í þeim felist fróðleikur fyrir börnin. Hægt er að velja um nafn söguhetjunnar, húðlit, hárgreiðslu og fleira. Bækurnar sem hafa komið út kenna litina og um húsdýrin í sveitinni en í sumar koma út bækur um öll dýr annars vegar og hins vegar ævintýri þar sem söguhetjan vaknar í ævintýraheimi og þarf að leysa úr áskorun. Íslensk sveit og gulur, rauður, grænn og blár Bækurnar tvær sem nú þegar eru komnar út eru annars vegar bók til að læra litina og hins vegar ævintýri sem kennir börnunum um dýrin í sveitinni. Fyrir fyrstu bókina studdumst við bara við litalagið sem allir þekkja: Gulur, rauður, grænn og blár… Og tökum litina í þeirri röð sem þeir eru í laginu,“ segir Sölvi og bætir við: ,,Í síðari bókinni fer söguhetjan upp í sveit og kynnist þar öllum helstu íslensku húsdýrunum og afkvæmunum þeirra.“ Tvær bækur eru síðan í vinnslu núna. „Fyrstu tvær bækurnar eru í rauninni fyrir yngri lesendahópana. Dóttir mín er til dæmis eiginlega orðin of gömul fyrir þær bækur því hún er orðin fimm ára. Hins vegar eru bækurnar sem eru í vinnslu núna báðar fyrir hennar aldur enda hefur hún verið virkur þátttakandi í að búa til aðra ævintýrabókina með mér,“ segir Sölvi. En hafið þið frændurnir þá bara setið saman og búið til ævintýrasögur fyrir börn? „Já,“ svarar Sölvi og hlær. „Við höfum búið þessar bækur til sjálfir og til dæmis eru dýr teiknuð í sveitabókinni sem eru dýr úr sveitinni sem Björgvin þekkir því hann hreinlega tók einhverjar myndir þar til að láta teiknarann fá. Björgvin á því nokkuð mikið í þeirri bók, en ég kannski meira í ævintýrabók sem er í vinnslu núna og er fyrir eldri krakka.“ Sölvi segir pabba Björgvins, Halldór Halldórsson, líka eiga mikið í bókunum. „Hann er mikill textasmiður og án efa orðheppnasti maður sem ég veit um.“ Í sveitabókinni eru líka sérsamdar ferskeytlur um hvert dýr. Við leggjum áherslu á að vera með efnið íslenskt. Ekki aðeins íslensk dýr, heldur sjást líka kennileiti í teikningunum sem fólk þekkir. Til dæmis Perlan og Hallgrímskirkja í bókinni um litina, fjöll og landslag í sveitabókinni. Síðan erum við svo heppnir að Halldór hefur til viðbótar við alla aðra hjálp samið ferskeytlur um hvert dýr. Mér finnst einmitt svo gaman af því að lesa texta sem rímar og held að mörgum finnist það.“ Ferskeytlan um kúna hljómar til dæmis svona: Hér er kýr um kú frá kú til kýr, kálfur er í haga. Nautið baular, breyskur fýr, bölvar alla daga. Sölvi segir þá frændur fyrst og fremst vera í útgáfunni af áhuga og ástríðu enda báðir í fullu starfi annars staðar. Sjálfum finnst Sölva mun meira gefandi að stússast í þessu á kvöldin og um helgar frekar en bókaútgáfan gengur þannig fyrir sig að þegar kaupandi hefur pantað bók af netinu og skráð nafn söguhetjunnar, valið útlit og skrifað sérstök skilaboð til barnsins, er bókin send í prentun og ýmist sótt eða send heim.Vísir/Vilhelm Að vakna í ævintýraheimi Sölvi segir þá frændur fyrst og fremst vera að sinna þessu verkefni á kvöldin og um helgar. „Enda finnst mér miklu meira gefandi að vera að stússast í þessu á kvöldin heldur en að liggja fyrir framan sjónvarpið.“ Hann segir Ævintýri.is langt frá því að vera einhver rekstur sem standi undir sér. Það er svo sem ekki pælingin okkar í augnablikinu hvað svo sem síðar verður. Við erum báðir í fullu starfi en sinnum þessu sem áhugamáli, tölum saman daglega og erum alltaf að hittast og spá í hitt og þetta eða að fá nýjar hugmyndir. Þetta er fyrst og fremst eitthvað sem okkur finnst skemmtilegt og gefandi og okkur langar til að gera.“ Sölvi segir eitt það skemmtilegasta hafa verið viðtökurnar við fyrstu bókinni. Hún tók rosalega langan tíma í vinnslu og útgáfu og við auglýstum hana bara á Facebook og Instagram. Við vissum ekkert við hverju væri að búast. Hvort við myndum selja fimm eða fimmtíu bækur. Útkoman var sú að við seldum miklu meira en okkur óraði fyrir, sem gerði það að verkum að þar var komið fjármagn til að gefa strax út næstu bók sem kom út þremur mánuðum síðar.“ Sölvi segir líka mikla hvatningu hafa falist í því að margir sem keyptu fyrstu bókina, keyptu líka þá síðari. „Það er svo frábært að hafa búið til eitthvað frá grunni sem að fólki líst síðan vel á. Því það að sama fólkið sé að kaupa aftur og aftur og jafnvel fleiri en eitt eintak til að gefa í jóla- eða afmælisgjafir segir mikið. Að vita að fólk sé ánægt með vöruna er mjög hvetjandi.“ En um hvað eru bækurnar sem koma út í sumar? „Þær eru fyrir aðeins eldri börn og þau sem eru að byrja að lesa sjálf. Fyrri bókin er fróðleiksbók um dýr. Valmöguleikarnir eru aðeins fleiri því til viðbótar við að velja nafn söguhetjunnar og útlit, verður hægt að velja hæðina og aldur á barninu. Til dæmis það að gírafinn sé stærsta dýrið á jörðinni, börnin sjá sjálfa sig sem söguhetju í hæðasamanburði við dýrin sem þau eru að lesa um,“ segir Sölvi og bætir við: „Seinni bókin er meiri ævintýrabók en þar vaknar söguhetjan upp í ævintýraheimi. Í þessum ævintýraheimi blasir við ákveðin áskorun sem söguhetjan gengur í að leysa úr. Ég get svo sem ekki farið að kjafta frá því í hverju vandamálið liggur en að minnsta kosti finnst dóttur minni þetta ævintýri svo skemmtilegt að þetta er sagan sem við erum oftast að lesa saman. Þótt í hana vanti allar teikningar og hún sé enn sem komið er bara texti í símanum mínum.“
Bókaútgáfa Menning Tengdar fréttir „Erum óhrædd við lausnir og reynum ekki að vera ofurforeldrar“ „Við erum óhrædd við lausnir og reynum ekki að vera ofurforeldrar eða ofurpar. Við nýtum okkur þá aðstoð sem við getum fengið því það er mikilvægt að átta sig á því að við getum ekki verið 100% í öllu,“ segir Hrefna Sif Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Tixly á Íslandi. 1. maí 2023 07:00 „Horfum oft á hvor aðra og veltum fyrir okkur hvernig þetta geti eiginlega verið“ „Allt kvöldið vorum við límdar saman og töluðum hreinlega saman allan tímann. Ég sagði henni frá hugmyndinni sem ég var búin að vera með í nokkur ár og það má segja að í framhaldinu hafi tekið við svona deiting-tími,“ segir Sirrý Svöludóttir og hlær. 13. febrúar 2023 07:00 Vekja athygli TIMES: Komandi kynslóðir geta hlustað á sögur sagðar með röddum ömmu og afa Fyrir rúmum tveimur og hálfu ári sögðum við frá ævintýralegri vegferð þeirra Péturs Hannesar Ólafssonar og Bjarka Viðars Garðarssonar, stofnenda fyrirtækisins ONANOFF sem þá þegar velti á annan milljarð króna með annan eigandann búsettan í Hong Kong en hinn á Akureyri. 14. apríl 2023 07:01 Notuðu hárblásara til að kynna hugmyndina á nokkrum fundum með ráðherrum „Þetta er reyndar þrjátíu ára gömul hugmynd,“ segir Óskar Svavarsson annar stofnanda nýsköpunarfyrirtækisins Sidewind sem stefnir að framleiðslu vindtúrbínu sem komið er fyrir í opnum gámum. 22. mars 2023 07:01 Hjón í nýsköpun: Meira að segja búin að búa til harðfisk án lyktarinnar 28. febrúar 2023 07:00 Mest lesið „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Viðskipti innlent Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Samstarf Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Fleiri fréttir Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar „Ég spyr: Er í lagi að grípa í rass og þukla á brjóstum?“ Sterkasti fasteignasali landsins: Að verða pabbi breytti öllu „Tek góða bæn, þakka fyrir daginn og sofna á núll einni“ Hittust á stefnumótaappi og blása nú lífi í týndar sögur Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir „Ég var alveg ákveðin í því að verða bankakona“ Fer í pyntingar með eiginkonunni tvo morgna í viku Bryndís tekur við af Dagmar hjá Austurbrú Ekki brenna út á aðventunni „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Sjá meira
„Erum óhrædd við lausnir og reynum ekki að vera ofurforeldrar“ „Við erum óhrædd við lausnir og reynum ekki að vera ofurforeldrar eða ofurpar. Við nýtum okkur þá aðstoð sem við getum fengið því það er mikilvægt að átta sig á því að við getum ekki verið 100% í öllu,“ segir Hrefna Sif Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Tixly á Íslandi. 1. maí 2023 07:00
„Horfum oft á hvor aðra og veltum fyrir okkur hvernig þetta geti eiginlega verið“ „Allt kvöldið vorum við límdar saman og töluðum hreinlega saman allan tímann. Ég sagði henni frá hugmyndinni sem ég var búin að vera með í nokkur ár og það má segja að í framhaldinu hafi tekið við svona deiting-tími,“ segir Sirrý Svöludóttir og hlær. 13. febrúar 2023 07:00
Vekja athygli TIMES: Komandi kynslóðir geta hlustað á sögur sagðar með röddum ömmu og afa Fyrir rúmum tveimur og hálfu ári sögðum við frá ævintýralegri vegferð þeirra Péturs Hannesar Ólafssonar og Bjarka Viðars Garðarssonar, stofnenda fyrirtækisins ONANOFF sem þá þegar velti á annan milljarð króna með annan eigandann búsettan í Hong Kong en hinn á Akureyri. 14. apríl 2023 07:01
Notuðu hárblásara til að kynna hugmyndina á nokkrum fundum með ráðherrum „Þetta er reyndar þrjátíu ára gömul hugmynd,“ segir Óskar Svavarsson annar stofnanda nýsköpunarfyrirtækisins Sidewind sem stefnir að framleiðslu vindtúrbínu sem komið er fyrir í opnum gámum. 22. mars 2023 07:01