Atvinnulíf

Er­lendis fjölgar draugastörfum: Aug­lýsa störf sem ekki eru til

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er auðvitað ömurlegt að leggja vinnu í góða ferilskrá og láta sig dreyma um auglýst draumastarf sem síðan reynist bara bull. Erlendis fer auglýstum draugastörfum fjölgandi og nú er svo komið að í Bandaríkjunum er jafnvel verið að kenna fólki í atvinnuleit að þekkja þessi störf.
Það er auðvitað ömurlegt að leggja vinnu í góða ferilskrá og láta sig dreyma um auglýst draumastarf sem síðan reynist bara bull. Erlendis fer auglýstum draugastörfum fjölgandi og nú er svo komið að í Bandaríkjunum er jafnvel verið að kenna fólki í atvinnuleit að þekkja þessi störf. Vísir/Getty

Það er vonandi að smæð markaðarins komi okkur stundum til góða. Til dæmis í því að þegar við sjáum störf auglýst þá eru það raunveruleg störf hjá vinnustöðum sem við vitum einhver deili á. 

Hér myndi fljótt spyrjast út ef verið væri að auglýsa eitthvað sem í raun væri bara bull.

Þessu er ekki svona farið erlendis. Þar sem draugastörfum (e. ghost jobs) virðast fara fjölgandi.

Það sem draugastarf þýðir er að fyrirtæki birtir auglýsingu um starf, tekur við umsóknum en hefur í raun enga ætlun til að ráða nokkurn mann í starfið.

En hvers vegna að birta falskar auglýsingar?

Þarna spilar hinn stóri heimur inn í því til dæmis viðurkenna yfir 40% bandarískra stjórnenda í könnun sem fjármálafyrirtækið Clarify Capital gerði að vera stundum með auglýsingar virkar í meira en sex mánuði, þótt ætlunin væri ekki að ráða í stöðurnar.

Fólk þó að sækja um – senda inn ferilskrár – bíða og vona.

Skýringarnar sem stjórnendur gefa eru atriði eins og að láta líta út fyrir að fyrirtækið sé í vexti, að róa starfsfólk sem þegar er undir of miklu álagi eða jafnvel til að safna umsóknum í banka.

Svo mikið vandamál eru auglýstu draugastörfin orðin að í nokkrum ríkjum í Bandaríkjunum hafa verið lögð fram eða samþykkt lög sem skylda fyrirtæki til gagnsæis. Í frétt Wall Street Journal nýlega segir frá vaxandi hópi lögmanna sem vilja einfaldlega banna atvinnuauglýsingar sem ekki er hægt að sannreyna.

Þá eru sérhæfðir miðlar og sérfræðingar farnir að kenna fólki í atvinnuleit að spotta draugastörf í auglýsingum. Því þau teljist vaxandi heimur og þá um leið: vaxandi vandamál fyrir fólk í atvinnuleit.


Tengdar fréttir

Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn?

Þegar tíðar fréttir eru um uppsagnir er auðvelt að finna til. Því hver uppsagnarfrétt er meira en okkur aðeins til upplýsinga. Þetta eru líka fréttir um vinnustaði sem við vitum þá um leið að eru að upplifa sorg, sjokk og allt þar á milli.

„Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“

„Ég viðurkenni að ég var sjokkeraður. Að átta mig á því hvernig einhver annar gæti haft svona mikil áhrif á mig og mína framtíð. Að aðgerðir og gjörðir annarra gætu haft þær afleiðingar að ég varð ekki aðeins atvinnulaus heldur stóð ég ekki lengur undir mínum fjárhagskyldum,“ segir Kári Þór Rúnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins Cliezen.

Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“

„Fríin mín voru eins og hjá flestum. Kannski einhverjar tvær vikur í senn. Og þá hugsaði ég oft með mér: Hvað það væri nú frábært að geta verið í fríi í svona tvo mánuði á launum og geta gert það sem manni langar til,“ segir Jón Jósafat Björnsson, framkvæmdastjóri Dale Carnegie um tímabilið þegar hann varð atvinnulaus um árið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×