Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Atli Ísleifsson skrifar 8. maí 2023 07:13 Reikna má með að hiti verði víða á bilinu sjö til fjórtán stig. Vísir/Vilhelm Nú er víðáttumikil lægð djúpt suðvestur af landinu og líkt og undanfarna daga þá beinir hún til okkar mildu og röku lofti. Reikna má með austan- og suðaustanátt í dag, golu, kalda eða stinningskalda og súld eða rigningu með köflum.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að á norðanverðu landinu verði þó yfirleitt þurrt fram eftir degi, en seinnipartinn megi búast við dálítilli vætu norðaustanlands. Þá megi reikna með hita víða á bilinu sjö til fjórtán stig. „Á morgun er útlit fyrir hægan vind á landinu og súld eða dálitla rigningu með köflum, en það verður úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 4 til 12 stig, svalast á Norðurlandi.“ Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Breytileg átt 3-8 m/s og súld eða dálítil rigning með köflum, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 5 til 12 stig. Á miðvikudag: Fremur hæg breytileg átt. Skýjað að mestu á landinu og líkur á stöku skúrum. Hiti frá 4 stigum við norðurströndina, upp í 14 stig á Suðausturlandi. Á fimmtudag: Hægt vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s og fer að rigna sunnan- og vestanlands síðdegis. Hægari vindur og bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast norðanlands. Á föstudag: Suðvestan- og sunnanátt og víða skúrir, en rigning suðaustanlands fram eftir degi. Hiti 6 til 14 stig. Á laugardag og sunnudag: Breytileg átt og rigning eða slydda með köflum, einkum norðanlands. Kólnandi veður.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira