Bingókúlur með hvítu súkkulaði - nýjung frá Góu Góa 9. maí 2023 07:53 Fyrstu Bingókúlurnar sem komu á markað voru með dökku súkkulaði. Nokkrum árum síðar komu Bingókúlur með ljósu súkkulaði og nú þær nýjustu með hvíta súkkulaðinu. Það gengur mikið á í Góu þessa dagana enda ýmsar nýjungar sem litið hafa dagsins ljós að undanförnu. Verið er að pakka fyrstu framleiðslu af nýjustu afurðinni en það eru Bingókúlur húðaðar með hvítu súkkulaði.
Mörg hafa mikið dálæti á Bingókúlum en þær eru alltaf með dásamlega góðri lakkrískaramellu og húðaðar súkkulaði. „Hvað er hægt að biðja um meira í þessu lífi?“ er nú stundum sagt í góðlátlegu gríni. Enda er ljúfa lakkrísbragðið alltaf lokkandi og með mismunandi súkkulaði utan um er leitast við að gefa súkkulaðiunnendum tækifæri til að njóta þess bragðs sem þau helst kjósa. Fyrstu Bingókúlurnar sem komu á markað fyrir mörgum árum voru með dökku súkkulaði. Nokkrum árum síðar komu Bingókúlur með ljósu súkkulaði og núna síðast þessar nýjustu með hvíta súkkulaðinu. Þannig er reynt að uppfylla óskir neytenda sem hafa mismunandi smekk fyrir súkkulaði þó ástin á lakkrísbragðinu sameini. Allar tegundirnar þrjár eru komnar í nýjar umbúðir, 150 gramma poka. Einhverjar sendingar af Bingókúlunum í nýju umbúðunum eru nú þegar komnar í verslanir og sjoppur og verður reynt að ljúka útkeyrslu til allra sem fyrst. Við mælum svo sannarlega með því að næla sér í allar þrjár tegundirnar.
Matur Sælgæti Mest lesið Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Viðskipti innlent Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Viðskipti innlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur Viðskipti erlent Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Viðskipti innlent Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira