„Framkvæmdir hófust á þessu ári og því hefur þetta þetta ekki átt sér langan aðdraganda. En það er alveg magnað að fylgjast með vinnu iðnaðarmannanna sem hafa ekki haft langan tíma til að klára verkið,“ segir Pétur Oddbergur Heimisson hótelstjóri í samtali við Vísi.
„Svo hafa eigendur og fjölskyldur þeirra tekið mjög virkan þátt í undirbúningi opnunar hótelsins og hefur það tekið á sig gríðarlega fallega mynd, jafnt að innan sem utan.“
Frábær tilfinning að opna loksins
Pétur segir frábæra tilfinningu að fá loksins að opna dyrnar fyrri gestum. Opnunarteiti fer fram í dag klukkan 14 til 17.
„Þar gefst gestum tækifæri á að skoða hótelið eins og það lítur út í dag. Svo verður hótelið opnað formlega á mánudaginn,“ segir Pétur sem segir heimamenn bjartsýna fyrir sumarið og bjartsýna á að aukning verði mikil á milli ára.
„Sérstaklega í ljósi þess að eftir sumarið verður komin reynsla á upplifun gesta og við verðum búin að safna að okkur endurgjöfum á helstu bókunarsíðum. En það tekur tíma að byggja þetta upp þar sem við erum að byggja reksturinn svo gott sem frá grunni, það er engin reynsla á þjónustu, gæði matar og fleira.
Þó það megi til gamans geta að við erum að opna hótel í byggingu þar sem hefur verið hótelrekstur síðan árið 1943.“
Borðleggjandi að festa kaup á kirkjunni
Pétur segir að þegar upp hafi komið sú staða að hægt væri að kaupa gömlu kirkjuna á Blönduósi þá hafi rekstraðilum hótelsins þótt það borðleggjandi að kaupa hana og nýta sem gistirými.
„Þetta verður einn áhugaverðasti gistimöguleikinn á landinu þar sem við munum lítið hreyfa við útliti kirkjunnar enda er hún gullfalleg og einstaklega sjarmerandi. Við horfðum meðal annars til norðurlanda, Frakklands og Hollands þar sem kirkjur hafa verið nýttar einmitt sem farfuglaheimili, hótel, íbúðir, barir og fleira.“
Þá segir Pétur að einnig verði hægt að halda þar athafnir eins og brúðkaup þar sem brúðhjónin hafi svo kost á því að gista í kirkjunni um nóttina.
„Er hægt að hugsa sér eitthvað rómantískara? Við verðum tilbúin með viðburðarými í gamla bakarínu í Gamla bænum á Blönduósi sem við köllum Krúttið, þar verður hægt að halda veislur en að auki ætlum við að halda tónleika og aðra viðburði.“















