Stefna vegna áhrifa uppfærslu á drægni Tesla-bifreiða Kjartan Kjartansson skrifar 13. maí 2023 10:40 Lögmenn stefnendanna segja einstakt hve Tesla-eigendur séu upp á náð og miskunn framleiðandans komnir þar sem hann sendi út uppfærslur sem virkjast sjálfkrafa þegar bíll er tengdur þráðlausu neti. Vísir/EPA Hópur eigenda tveggja tegunda Tesla-rafbireiða hyggjast stefna framleiðandanum vegna sjálfvirkrar hugbúnaðaruppfærslu sem þeir segja að hafi dregið úr drægni bifreiðanna eða jafnvel skemmt rafhlöðu þeirra.
Í stefnunni sem lögð var fram í Kaliforníu í Bandaríkjunum er Tesla sakað um að brjóta bæði ríkis- og alríkislög vegna þess að hugbúnaðaruppfærslur sem eru sendar út sjálfkrafa þegar bílar eru tengdir þráðlausu neti geta dregið úr drægni þeirra um fimmtung. Í sumum tilfellum hafa eigendur Model S og Model X bifreiða þurft að skipta út rafhlöðu fyrir allt að tvær milljónir króna, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Lögmenn hópsins segja að Telsa neiti að greiða bíleigendum bætur sem lenda í að drægni bifreiða þeirra minnki við uppfærslur. Reuters segir að Tesla hafi áður gert sátt í máli sem snerist um hugbúnaðaruppfærslu sem dróg tímabundið úr rafspennu í Model S-bifreiðum. Eigendur þeirra fengu jafnvirði tæpra 87 þúsund íslenskra króna hver.
Tesla Vistvænir bílar Bandaríkin Mest lesið Vilja minnka líkurnar á því að vinna í Lottóinu Viðskipti innlent Milljarður í afgang í Garðabæ Viðskipti innlent Útflutningur gefur eftir en einkaneyslan stígur fram á sviðið Viðskipti innlent Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur Besta rekstrarár frá opnun Hörpu Viðskipti innlent Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Samstarf Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Samstarf Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga hærri tolla á alla Facebook hættu að beina auglýsingum að konu eftir að hún lögsótti Meta Boeing fær að smíða orrustuþotur framtíðarinnar Hótar himinháum áfengistollum á Evrópu Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ „Alvarlegt viðskiptastríð“ hafið Northvolt í þrot Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum Óvænt verkföll á flugvöllum í Þýskalandi hafa víðtæk áhrif Markaðir bregðast illa við tollahækkunum Trump Skype heyrir brátt sögunni til Sjá meira