Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti hélt meðal annars glæsilega afmælistónleika í Gamla bíó síðastliðinn laugardag, og áttu mæðgurnar Eva Laufey Kjaran og Sigurrós Allansdóttir báðar afmæli í vikunni.
Á meðan skelltu skemmtikraftarnir Eva Ruza Miljevic og Hjálmar Örn Jóhannesson sér til Möltu að skemmta á árshátíð Skattsins sem haldin var í dýflissu.
Nafnaveisla og þrítugsafmæli
Hjónin Ingileif Friðriksdóttir, sjónvarps- og fjölmiðlakona, og María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra UN Women, buðu í nafna- og afmælisveislu á Uppstignardaginn 18. maí.
Tilkynntu nafnið með frumsömdu ljóði
Flottir á leið í veislu
Helgi Ómarsson, ljósmyndari og áhrifavaldur, og unnusti hans Pétur Björgvin Sveinsson voru flottir á leið í nafna- og afmælisveisluna.
Þrítug listakona
Rakel Tómasdóttir listakona fagnaði einnig þrítugsafmæli sínu á dögunum.
Afmælistónleikar í Gamlabíói
Tónlistarmaðurinn Emmsjé Gauti hélt afmælistónleika í Gamla bíói um helgina þar sem hann fagnaði tuttugu ára rappafmæli 20. maí.
Breytir listamannanafninu
Tónlistarkonan Dagbjört Rúriksdóttir hefur verið þekkt undir listamannanafninu DIA en hefur nú ákveðið að breyta því og skrifa sig sem Dagbjört Rúriks.
Æskudraumur Diljár varð að veruleika
Eurovison-farinn Diljá Pétursdóttir segist hafa dreymt um að taka þátt í Eurovison frá því hún var aðeins sjö ára gömul.
Diljá var einu sæti frá því að komast áfram
Nýstúdent um helgina
Raunveruleikastjarnan og tvíburinn Gunnar Skírnir Sæmundsson útskrifaðist sem stúdent um helgina.
Óvissuferð á afmælisdaginn
Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, fagnaði 34 ára afmæli sínu í faðmi fjölskyldunnar.
Tvöföld afmælisgleði Evu Laufeyjar
Móðir Evu Laufeyjar, Sigurrós Allansdóttir, átti einnig afmæli í vikunni og fagnaði 60 árum.
Krúttlegir hundabræður
Birgitta Líf Björnsdóttir, raunveruleikastjarna og athafnakona, birti sæta mynd af hundunum sínum.
Mæðgnaferð til Tenerife
Tónlistarkonan Elísabet Eyþórsdóttir, þekkt sem Beta Ey, fór í mæðgnaferð til Tenerife á dögunum.
Bakgarðshlaup í Þýskalandi
Ofurhlaupakonan Mari Jarsk tók þátt í Bakgarðshlaupinu, Race of the champions, í þýska smábænum Rettert um helgina, þar sem hún hljóp 34 hringi eða 227 kílómetra.
Mari Jaersk lauk keppni á 34. hring
Veislustjórn í dýflissu á Möltu
Skemmtikraftarnir og vinirnir Eva Ruza Mijevic og Hjálmar Örn Jóhannesson veislustýrðu árshátíð Skattsins í gamalli dýflyssu á Möltu um helgina.
Fimm mánuðum fagnað
Katrín Edda Þorsteinsdóttir, verkfræðingur og áhrifavaldur, fagnaði fimm mánaða afmæli dóttur sinnar á dögunum.
Danskur draumur
Athafnakonan Andrea Magnúsdóttir nýtur lífsins í Kaupmannahöfn á glæsihótelinu Villa Copenhagen þessa dagana.
Mættu saman á körfuboltaleik
Systkinin Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra og Magnús Sigurbjörnsson mættu úrslitaleik Tindastóls og Vals í vikunni þar sem Tindastóll tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á dramatískan hátt.
Nýtt lag Svölu og Inga Bauer
Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir gaf út nýtt lag síðastliðinn föstudag, Ein nótt, í samvinnu við Inga Bauer pródúsent.
Lagasmíð í skálanum
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens samdi tónlist í sólskálanum umvafinn blómum um helgina.
Hús fyrir fimm
Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins og eigandi Extraloppunnar, og Jóhann Sveinbjörnsson festu kaup á parhúsi á dögunum.