„Þetta eru í raun vinir og vandamenn Portsins allir saman komnir, sem við höfum verið að vinna með undanfarin ár. Eins fannst okkur skemmtilegt að hafa alla með sem tóku þátt í fyrstu sýningu Gallery Ports, Port nr. 1, sem opnaði 26. mars 2016,“ segir Árni.
Kepptust við tímann
„Gallery Port hóf starfsemi sína í litlu bakhúsi á Laugavegi 23b árið 2016 og var inngangurinn inn um dimmt og þröngt port og galleríið nefnt eftir því. Stofnendur þess voru Árni Már Erlingsson, Skarphéðinn Bergþóruson og Þorvaldur Jónsson. Það var ekki tjaldað til langs tíma í upphafi, til stóð að rífa húsið hvað á hverju, og hugmyndin sú að halda eins margar sýningar og listviðburði og tíminn leyfði.
Sjö árum síðar og einum flutningi upp á Laugaveg 32 stendur Gallery Port enn keikt. Það hafa hundruðir listamanna sýnt verk sín á hinum fjölbreyttustu sýningum, fólk á öllum aldri og hvaðanæva að hefur tekið þátt,“ segir í fréttatilkynningu.
Árni Már var viðmælandi í seríunni Kúnst í fyrra. Hér má sjá viðtalið við hann:
Hátt í 40 listamenn
Hér má sjá lista yfir þá listamenn sem taka þátt:
Arna Óttarsdóttir - Árni Már Erlingsson - Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir - Ásgeir Skúlason - Auður Lóa Guðnadóttir - Auður Ómarsdóttir - Baldur Helgason - Carissa Baktay - Comfortable Universe - Dóra Hrund Gísladóttir - Fia Yang - Flétta - Geoffrey Þór Huntingdon-Willliams - Guðmundur Thoroddsen - Gjörningaklúbburinn - Halldór Sturluson - Hanna Dís Whitehead - Helga Páley - Hjördís Eyþórsdóttir - Joe Keys - Julie Sjöfn Gasiglia - Korkimon - Krot og Krass - Loji Höskuldsson - Narfi Þorsteinsson - Natka Klimowicz - Patty Spyrakos - Sigurður Atli Sigurðsson - Sigtryggur Berg Sigmarsson - Skarphéðinn Bergþóruson - Sóley Lee Tómasdóttir - Steingrímur Gauti - Sunna Svavarsdóttir - Svavar Pétur Eysteinsson - Unnar Ari - Þorvaldur Jónsson - Þrándur Þórarinsson - Þórsteinn Svanhildarson.
Afmælisveislan sjálf hefst með opnun sýningarinnar KOLLEGAR þann 3. júní, næstkomandi laugardag, og stendur á milli klukkan 15:00 og 18:00. Sýningin er opin til 29. júní næstkomandi.