Samkvæmislífið

Samkvæmislífið

Fréttir af fólki að gera sér glaðan dag við hin ýmsu tilefni.

Fréttamynd

Chappell Roan elskar Fischersund

Íslensku ilmsystkinin í Fischersundi slóu í gegn á tískuvikunni í París á dögunu með vel heppnaða ilmtónleika. Meðal gesta var súperstjarnan Chappell Roan sem er hrifin af íslensku lyktunum.

Tíska og hönnun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ingi­björg Sól­rún steig trylltan dans

Mikill fjöldi fólks sótti hádegisviðburð UN Women á Íslandi í Iðnó, fimmtudaginn 5. mars. UN Women á Íslandi, í samstarfi við plötusnúðinn Benna Bruff, buðu í hádegisdans í anda „Milljarður rís“ í tilefni FO-herferðar UN Women á Íslandi og alþjóðlegs baráttudags kvenna, 8. mars.

Lífið
Fréttamynd

Gjöfull trekantur

Það var líf og fjör í Gallery Port á dögunum þegar sýningin Throuple opnaði með pomp og prakt. Listunnendur komu þar saman og upplifðu fjölbreytileikann.

Menning
Fréttamynd

Bleikar kollur, gellur og gaurar

Fimm hundruð manns mættu í bleikasta partí ársins á skemmtistaðnum Auto síðustu helgi til að komast að því fyrir hvað dularfullu bleiku kollurnar, sem höfðu dreift sér víða um samfélagsmiðla, stæðu eiginlega.

Lífið
Fréttamynd

For­setinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu

Það var glatt á hjalla á Söguloftinu í Borgarnesi á laugardag þegar Þjóðleikhúsið frumsýndi í samstarfi við Landnámssetrið glænýjan einleik Unnar Aspar Stefánsdóttur, Sölku - ástina og dauðann í leikstjórn Björns Thors.

Menning
Fréttamynd

Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins

Rappsenan tók yfir Gamla Bíó á dögunum þegar rapparinn Izleifur blés til alls herjar tónlistarveislu í tilefni af plötuútgáfu. Frítt var inn og ásamt Izleifi kom þotulið tónlistarfólks fram.

Tónlist
Fréttamynd

Fjörugt Food and fun fram­undan

Matarhátíðin Food and fun verður haldin í 23. skipti hér í Reykjavík í lok febrúar þar sem sjóðheitir matreiðslumeistarar hvaðan af úr heiminum koma sem gestakokkar inn á okkar vinsælustu veitingastaði.

Lífið
Fréttamynd

Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið

Listamennirnir Sindri Dýrason, Anna Jansdóttir, Jón Múli, Jón Sæmundur og Narfi Þorsteinsson héldu málverkasýningu í gamla Landsbankahúsinu í samstarfi við Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar föstudaginn 5. febrúar. Um fimm hundruð gestir mættu til að dást að listinni.

Menning
Fréttamynd

Seldu upp og undir­rituðu samning til 666 ára

Rokkhátíðin Hellfoss fór fram í fyrsta skipti í miðbæ Selfoss, tónleikagestir komu víða að og seldist upp á hátíðina. Í tilefni af vel heppnaðri hátíð undirrituðu Davíð Lúther, eigandi Sviðsins, og Rúnar Hroði, stofnandi Hellfoss, samning til 666 ára um að hátíðin verði áfram haldin í miðbæ Selfoss. 

Menning
Fréttamynd

Fram, fram, framakonur

Það var sturlað stuð í Úlfarsárdalnum á laugardagskvöld þegar Framarar blótuðu þorrann langt fram á nótt og stigu trylltan dans.

Lífið
Fréttamynd

Glæsi­legustu bollur landsins ruku út

Stjörnubakarinn Elenora Rós seldi upp gríðarlegt magn af girnilegum bollum í einhverju rosalegasta bolluteiti ársins í Höfuðstöðinni í gær. Elenora, sem er búsett í London, var algjörlega í skýjunum með viðburðinn.

Lífið
Fréttamynd

Geoff og Ásta Margrét nýtt par

Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams, eigandi Priksins og tónlistarstjóri Sticky Records, hefur fundið ástina í örmum Ástu Margrétar Hafbergsdóttur, myndlistarkonu og sálfræðinema.

Lífið
Fréttamynd

Vaskir Vals­menn hressir á Hlíðar­enda

Gríðarleg gleði tók yfir Hlíðarenda um helgina þegar íþróttafélagið Valur stóð fyrir þorrablóti miðbæjar og hlíða. Stjörnur hverfisins létu sig ekki vanta og meðal gesta voru Einar Þorsteinsson fyrrum borgarstjóri, Stefán Árni Pálsson íþróttafréttastjarna, Hildur Gunnlaugsdóttir arkítekt og áhrifavaldur, Þorgrímur Þráins rithöfundur, Fúsi og Óli Stef handboltagoðsagnir og Hreiðar Levý handboltakempa og fasteignasali. 

Lífið
Fréttamynd

Bullandi stemning hjá Blikum

Hátt í þúsund manns komu saman og blótuðu þorrann í Smáranum í Kópavogi síðastliðna helgi. Var um að ræða fyrsta þorrablót Breiðabliks og stemningin náði hæstu hæðum þegar Kópavopsbúinn Erpur Eyvindarson mætti með heilan karlakór á sviðið. 

Lífið
Fréttamynd

Blint stefnu­mót heppnaðist vel

Menningarvitar landsins komu saman í Ásmundarsal síðastliðna helgi og skáluðu fyrir glæsilegri opnun samsýningarinnar Blint stefnumót eða Blind date. Þar mætast listamennirnir Kristín Karólína Helgadóttir og Sigurður Guðmundsson á skemmtilegan máta.

Menning
Fréttamynd

Heiða og Hildur djömmuðu með Breiðhyltingum

Þakið ætlaði að rifna af ÍR höllinni um helgina þegar Breiðhyltingar héldu þorrablót með miklum stæl. Borgarstjóraefni létu sig ekki vanta og upprunalegi Breiðholts-rapparinn Emmsjé Gauti tryllti  lýðinn.

Lífið
Fréttamynd

Halla T meðal sofandi risa

Elegansinn var í fyrirrúmi í opnunarteiti Kristjáns Maack á ljósmyndasýningunni Sofandi risar. Meðal gesta voru Heiða Björg borgarstjóri og Halla Tómasdóttir forseti.

Menning