Þáðu boð tveimur árum eftir að hafa dregið lið sitt úr keppni Sindri Sverrisson skrifar 1. júní 2023 14:01 Snæfell endaði í 3. sæti 1. deildar á nýafstaðinni leiktíð og féllu svo úr leik gegn Þór Akureyri í undanúrslitum. @kkd.snaefells/Summi Kvennalið Snæfells verður á ný með í efstu deild kvenna í körfubolta, Subway-deildinni, á næstu leiktíð eftir að hafa þegið boð þess efnis.
Snæfellingum gafst kostur á að snúa aftur í deildina vegna fjölgunar liða í deildinni úr átta í tíu, og vegna þess að ÍR afþakkaði sæti þar. ÍR-ingar höfðu endað í áttunda og neðsta sæti Subway-deildarinnar á síðustu leiktíð en hefðu mátt spila þar áfram á næstu leiktíð vegna fjölgunarinnar. Snæfell endaði aftur á móti í 3. sæti í 1. deildinni, á eftir Stjörnunni og Þór Akureyri sem komust upp í Subway-deildina, og var því næst í röðinni á eftir ÍR til að fá þar sæti. Snæfell spilaði síðast í efstu deild veturinn 2020-21 og endaði í næstneðsta sæti en dró lið sitt svo um sumarið úr keppni fyrir næstu leiktíð í deildinni. Félagið hefur hins vegar náð afar eftirtektarverðum árangri í gegnum tíðina því Snæfell varð til að mynda Íslandsmeistari þrjú ár í röð á árunum 2014-16. Eins og fyrr segir skipa tíu lið Subway-deild kvenna á næstu leiktíð og nú er orðið ljóst að það verða Valur, Keflavík, Haukar, Njarðvík, Grindavík, Fjölnir, Breiðablik, Stjarnan, Þór Akureyri og Snæfell. Átta efstu liðin fara í úrslitakeppni með því fyrirkomulagi sem nú þekkist. Neðsta lið deildarinnar fellur beint í 1. deild en sæti þess lið tekur sigurvegari 1. deilar. Liðið sem hafnar í næst neðsta sæti úrvalsdeildar mun leika umspilsleiki við liðin í 2. - 4. sæti 1. deildar um sæti í úrvalsdeild tímabilið á eftir.
Snæfell Subway-deild kvenna Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Sjá meira