Skýjað og dálítil væta vestanlands en bjart eystra Atli Ísleifsson skrifar 6. júní 2023 07:13 Hiti á landinu verður á bilinu átta til átján stig, hlýjast á Suðausturlandi. Vísir/Vilhelm Hæðin suður af landinu sem er búin að valda vestlægri átt hér á landi, verður þar í nokkra daga í viðbót. Það bætir í úrkomu á vestanverðu landinu frá miðvikudagskvöldi fram að laugardeginum en á eftir kemur hæðin yfir landid og er útlit fyrir bjartviðri um mest allt land í nokkra daga.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að það verði suðvestlæg átt í dag, fimm til þrettán metrar á sekúndu, og hvassast á Vestfjörðum. Skýjað með dálítilli vætu vestanlands en bjart eystra. Gert er ráð fyrir að hiti verði á bilinu átta til átján stig, hlýjast á Suðausturlandi. „Mjög svipað veður verður á morgun til að byrja með en vaxandi sunnanátt og fer að rigna vestanlands seinnipartinn, 8-13 m/s annað kvöld. Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og rigning eða súld um vestanvert landið á fimmtudag og föstudag en hægari og úrkomuminna austantil. Hiti breytist lítið. Dregur úr úrkomu um kvöldið. Vestlæg eða breytileg átt og úrkomulítið á laugardag og léttir til, hiti 8 til 13 stig. Svo fylgja nokkrir dagar með fremur hægum vindum, bjartviðri og hlýnandi veðri,“ segir í tilkynningunni. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestlæg átt 3-10 m/s, skýjað og úrkomulítið, en víða bjartviðri um landið austanvert. Hiti 11 til 17 stig að deginum. Sunnan 5-13 og fer að rigna vestantil um kvöldið. Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 8-15 og rigning með köflum. Heldur hægari vindur og úrkomuminna um landið austanvert. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi. Á föstudag: Suðlæg átt 8-15 og rigning eða súld, og hiti 8 til 13 stig, en þurrt og víða bjart um landið norðaustanvert og hiti að 18 stigum á þeim slóðum. Styttir upp um kvöldið. Á laugardag: Breytileg átt 3-8 og skýjað með köflum en léttir til síðdegis. Hiti 8 til 13 stig. Á sunnudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað. Hiti yfirleitt 9 til 14 stig yfir daginn. Á mánudag: Útlit fyrir vestlæga átt 3-10 og bjart veður í flestum landshlutum. Hiti 12 til 17 stig yfir daginn.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira