Frábær stemning í brakandi blíðu Bylgjulestin 21. júní 2023 10:09 Bylgjulestin og lestarstjórarnir Vala Eiríks, Svali og Erna Hrönn komu sér vel fyrir á MA lóðinni við Lystigarðinn á Akureyri. Bylgjan var í beinni síðasta laugardag milli kl. 12 til 16. Bylgjulestin var á Akureyri síðasta laugardag, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Veðrið lék við bæjarbúa og aðra gesti svo ekki er skrýtið að stemningin hafi verið einstaklega góð í bænum þennan daginn.
Lestarstjórarnir Vala Eiríks, Svali og Erna Hrönn komu sér vel fyrir á MA lóðinni við Lystigarðinn á Akureyri þar sem þau voru í beinni útsendingu á Bylgjunni milli kl. 12 til 16. „Það var algjörlega dásamlegt fyrir norðan síðustu helgi í veðurblíðunni. Gleðin skein úr hverju andliti og það var svo gaman að fagna þjóðhátíðardeginum með Norðlendingum,“ segir Erna Hrönn, einn lestarstjóra síðustu helgar. „Það sem stóð helst upp úr var eiginlega tvennt, að heimsækja Skógarböðin og taka viðtal við framkvæmdastjórann ofan í böðunum sem var mjög ævintýralegt. Svo fékk ég virkilega hlýtt í hjartað við að heimsækja Helga Þórsson á Kristnesi, í sveitinni minni.“ Rætt var við heimafólk og gesti á Bylgjunni auk þess sem góðir gestir kíktu í heimsókn. Geggjaðir matarvagnar frá Götubitanum voru með Bylgjulestinni á Akureyri síðasta laugardag þar sem Silli kokkur, 2Guys og Dons Donuts seldu ljúffengar veitingar ofan í gesti. Erna Hrönn elskar Akureyri, ekki síst yfir sumartímann. „Tempóið hér er rólegra en í höfuðborginni en þó allt til alls á sama tíma. Það er hægt að gera svo margt skemmtilegt á Akureyri, til dæmis er tjaldsvæðið á Hömrum algjör paradís fyrir fjölskylduna. Ég mæli svo með að kíkja í Jólahúsið í sveitinni minni sem er opið allt árið um kring.“ Bylgjulestin lagði af stað fyrsta laugardag í júní en fyrsti viðkomustaðurinn var Grindavík þar sem fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti fór fram. Á næstu vikum mun hún ferðast vítt og breitt um landið og heimsækja m.a. Húsavík og Akranes. Næsta laugardag, 24. júní, mun Bylgjulestin heimsækja Stykkishólm og er óhætt að búast við miklu fjöri í bænum þann daginn. Bylgjulestin, björt og brosandi um allt land í sumar.
Bylgjan Bylgjulestin Ferðalög Mest lesið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Laufey og Collab í eina sæng Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ Lífið Fleiri fréttir Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira