Datt úr lið við fagnaðarlætin Máni Snær Þorláksson skrifar 21. júní 2023 15:11 Til vinstri má sjá Henry er hann fagnar eftir að hafa giskað rétt í fyrstu tilraun. Til hægri má sjá stjórnanda þáttanna, Drew Carey. Instagram/Getty/Matt Winkelmeyer Karlmaður sem vann stóran vinning í bandaríska sjónvarpsþættinum The Price is Right slasaðist í fagnaðarlátunum er hann vann leik í þættinum. Eiginkona hans þurfti að koma upp á svið til hans til að hjálpa honum að klára leikinn.
Það var nokkuð góð ástæða fyrir fagnaðarlátunum hjá Henry, karlmanninum sem um ræðir, því honum tókst að vinna leikinn sem hann spilaði á örskömmum tíma. Leikurinn virkaði þannig að Henry átti að giska á hvort hver tölustafur í fjögurra stafa runu væri hærri eða lægri en upphæð vinningsins. Henry náði að giska rétt í fyrstu tilraun og hoppaði um í kjölfarið. Í myndbandi sem birt var á Instagram-síðu sjónvarpsþáttarins er klippt síðar í þáttinn í miðjum fagnaðarlátunum. Þá útskýrir Drew Carey, stjórnandi þáttarins, að öxl keppandans hafi dottið úr lið er hann fagnaði. View this post on Instagram A post shared by The Price Is Right (@therealpriceisright) „Svo hann er ekki að fara að ná að snúa hjólinu en Alice ætlar að snúa því fyrir hann,“ segir Carey en Alice er eiginkona Henry. Um er að ræða hjól sem ákvarðar það hvort Henry komist áfram í þættinum. Alice snéri hjólinu og fékk 95 en erfitt er að fá hærri tölu en það er næsthæsta talan á hjólinu á eftir 100. Að lokum fór það svo að Henry vann ferð til Hawaii. Óvíst er hvort ferð á bráðamóttökuna hafi verið innifalin í verðlaununum en í færslu sjónvarpsþáttarins á Instagram er tekið fram að í lagi sé með Henry eftir þetta allt saman.
Bandaríkin Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira