Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 2-1 tap er liðið tók á móti Finnum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Berglind Rós Ágústsdóttir skoraði mark Íslands eftir að Eveliina Summanen og Jutta Rantala höfðu komið Finnum tveimur mörkum yfir.
Það var vel mætt á Laugardalsvöll þar sem Ísland fékk Finnland í heimsókn í vináttuleik en íslensku stelpurnar eru í fullum undirbúningi fyrir Þjóðadeildina. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, byrjaði í 3-5-2 leikkerfinu líkt og gegn Sviss í síðasta vináttuleik sem endaði með 1-2 sigri Íslands.
Íslenska liðið fór vel af stað og eftir tvær mínútur komst Svava Rós Guðmundsdóttir ein í gegn. Karólína Lea átti glæsilega sendingu þar sem hún vippaði boltanum inn fyrir vörn Finnlands en skot Svövu var ekki gott og endaði framhjá.

Eftir líflegar fyrstu tíu mínútur datt leikur Íslands niður og Finnland fór að færa sig ofar á völlinn. Gestirnir héldu betur í boltann og bjuggu sér til góðar stöður á vallarhelmingi Íslands.
Finnland komst verðskuldað yfir á 28. mínútu þegar Katariina Kosola renndi boltanum á Eveliina Summanen sem tók skot langt fyrir utan teig þar sem boltinn fór í stöngina og inn.

Sveindís Jane var nálægt því að jafna skömmu eftir mark Finnlands. Sveindís gerði vel í að búa sér til færi gegn þremur varnarmönnum. Sveindís lét síðan vaða á markið en boltinn fór í stöngina. Sveindís hélt áfram að koma sér í færi og þegar fyrri hálfleikur var við það að klárast slapp hún ein í gegn en skaut yfir.

Fleiri urðu mörkin ekki og Finnland var 0-1 yfir í hálfleik.
Marki yfir héldu Finnar áfram að sækja í sig veðrið. Gestirnir fengu þrjú nokkuð góð færi á fyrstu tíu mínútum síðari hálfleiks en aðeins eitt skot fór á markið sem Telma Ívarsdóttir varði. Líkt og í fyrri hálfleik hélt Sveindís Jane áfram að vera eina ógn íslenska liðsins fram á við.

Jutta Rantala bætti síðan við öðru marki Finnlands þegar 66 mínútur voru liðnar. Katariina Kosola fór ansi illa með Berglindi Rós Ágústsdóttur og renndi síðan boltanum fyrir markið á Juttu Rantala sem skoraði. Þetta var önnur stoðsending Kosola í leiknum.
Tveimur mínútum síðar bætti Berglind Rós upp fyrir mistökin og minnkaði muninn í 1-2. Karólína Lea tók aukaspyrnu þar sem hún gaf boltann fyrir markið. Berglind gerði vel í að skalla boltann í slána og inn.

Fleiri urðu mörkin þó ekki og niðurstaðan varð því 2-1 tap íslenska liðsins.
Ísland heldur næst til Austurríkis þar sem liðið spilar við heimakonur þriðjudaginn 18. júlí klukkan 17:45. Það verður áhugavert að fylgjast með hvort Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, muni gera breytingar á upplegginu.