Ari hefur setið í stjórn frá mars 2022 og komst í fréttir þegar greint var frá því að stjórnarmaðurinn hafi keypt bréf fyrir tæpar 55 milljónir króna í útboði á hlutum ríkisins í Íslandsbanka sem fram fór í fyrra. Samkvæmt Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands var Ara óheimilt að taka þátt í útboðinu miðað við reglur um viðskipti stjórnenda.

Ný stjórn Íslandsbanka verður kjörin á hluthafafundi sem fram fer 28. júlí næstkomandi. Boðað var til fundarins í kjölfar þess að Fjármálaeftirlit Seðlabankans komst að þeirri niðurstöðu að starfsmenn bankans hafi brotið lög við framkvæmd útboðs á 22,5% eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka í mars 2022.
Í samkomulagi bankans við Seðlabankann gengst hann við því að hafa brotið gegn lögum við söluferlið og lýkur málinu með greiðslu 1,16 milljarða króna sektar. Birna Einarsdóttir sagði af sér sem bankastjóri Íslandsbanka í lok júní.
Lögmaður og fyrrverandi fjármálastjóri Arion banka
Tilnefningarnefnd Íslandsbanka hefur tilnefnt Lindu Jónsdóttur og Stefán Pétursson sem nýja stjórnarmenn og þá leggur valnefnd Bankasýslu ríkisins, sem fer með hlut ríkisins í Íslandsbanka, til að Haukur Örn Birgisson verði kjörinn inn í stjórn. Tilnefningarnefnd leggur til, í samráði við Bankasýslu ríkisins, að Linda verði kjörin nýr formaður stjórnar. Þetta kemur fram í tilkynningu tilnefningarnefndar sem birt var í dag.
Stefán var fjármálastjóri Arion banka á árunum 2010 til 2021 og hefur starfað sem fjármálastjóri hjá lyfjaþróunarfyrirtækinu EpiEndo Pharmaceuticals ehf. frá árinu 2022, að sögn tilnefningarnefndar. Haukur er sagður hafa starfað sem lögmaður í um tvo áratugi og þar af sem sjálfstætt starfandi lögmaður í fimmtán ár.
Stjórn Bankasýslu ríkisins tilnefnir þrjá einstaklinga í stjórn bankans og einn varamann en tveir þeirra sitja áfram í stjórn. Þetta eru Anna Þórðardóttir, Agnar Tómas Möller, Haukur Örn Birgisson sem kemur nýr inn, og svo Herdís Gunnarsdóttir, sem er tilnefnd til áframhaldandi setu í varastjórn.
Tilnefningarnefnd Íslandsbanka leggur til að auk þeirra sem stjórn Bankasýslu ríkisins hafi tilnefnt, verði eftirtaldir einstaklingar kjörnir í stjórn Íslandsbanka: Linda Jónsdóttir, Frosti Ólafsson, Stefán Pétursson, Valgerður Skúladóttir, og Páll Grétar Steingrímsson sem varamaður. Líkt og fyrr segir er lagt til að Linda og Stefán komi ný inn í stjórn en aðrir eru tilnefndir til áframhaldandi stjórnarsetu.
„Þegar litið er til baka var margt sem draga má lærdóm af,“ sagði Finnur nýverið um framkvæmd söluútboðsins í ársskýrslu Íslandsbanka og sagði ljóst að bankinn hefði átt að standa sig betur „í ákveðnum þáttum.“
Auk Birnu Einarsdóttur bankastjóra og áðurnefndra stjórnarmanna hafa fleiri hætt hjá bankanum eftir niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins. Þeirra á meðal eru Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta, og Atli Rafn Björnsson, sem stýrði fyrirtækjaráðgjöf bankans.
Hafi víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi
Í skýrslu tilnefningarnefndar Íslandsbanka kemur fram að Linda Jónsdóttir sé framkvæmdastjóri rekstrar hjá Marel. Hún hafi áður verið fjármálastjóri fyrirtækisins og þar áður forstöðumaður fjárstýringar, fjármögnunar og fjárfestatengsla.

„Linda hefur yfirgripsmikla alþjóðlega reynslu af stjórnun, fjármálum, hugbúnaði og rekstri í gegnum störf sín hjá Marel, en hjá félaginu starfa um 8.000 manns í yfir 30 löndum og veltir árlega 1,7 milljarði evra. Linda hefur einnig víðtæka starfsreynslu úr íslensku atvinnulífi frá störfum sínum fyrir Eimskip, Burðarás og Straum fjárfestingarbanka. Linda situr í stjórn Vísindagarða og hefur áður sinnt stjórnarstörfum fyrir Viðskiptaráð Íslands og Framtakssjóð Íslands (FSÍ),“ segir í ágripi tilnefningarnefndar.
Linda er sögð vera með meistaragráðu í Fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík, Cand. Oecon gráðu frá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, og löggildingarpróf í verðbréfamiðlun. Þá eigi Linda 12.659 hluti í Íslandsbanka og maki hennar 12.659 hluti.
Fréttin hefur verið uppfærð.