Barbie í leikstjórn Greta Gerwig þénaði alls tæpar 21,5 milljónir króna í miðasölu hérlendis um helgina og hreppti Oppenheimer í leikstjórn Christopher Nolan annað sætið á vinsældalistanum og þénaði rúmar 14,2 milljónir króna. Saman þénuðu myndirnar rúmar 35,7 milljónir króna hérlendis á þremur dögum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá FRÍSK en alls nam miðasala tæpum 43 milljónum króna um helgina sem gerir hana að tekjuhæstu kvikmyndahelgi sögunnar hér á landi.

„Eftirvæntingin fyrir kvikmyndunum Barbie og Oppenheimer ætti ekki að hafa farið framhjá neinum enda svokallað Barbenheimer æði um allan heim. Íslenskir kvikmyndahúsagestir létu sitt ekki eftir liggja um helgina og þyrst kvikmyndaáhugafólk flykktist á stórmyndirnar tvær,“ segir í tilkynningunni.
Miklar gleðifregnir
Daníel Traustason, framkvæmdastjóri FRÍSK, segir þetta vera miklar gleðifregnir fyrir íslensk kvikmyndahús.
„Og bara alls staðar í heiminum. Það er talað um að Barbenheimer-æðið sé nú að bjarga kvikmyndabransanum, það er náttúrulega verkfall úti og allt þetta, og það er bara gaman að sjá þetta endurspeglast hér á landi líka.“ Vísar hann þar til yfirstandandi verkfalls leikara og handritshöfunda í Hollywood sem hefur lamað kvikmyndaiðnaðinn í Bandaríkjunum.
Kvikmyndahús hafa víða þurft að há varnarbaráttu á síðustu árum og þurft að glíma bæði við breytta neysluhegðun með tilkomu streymisveitna og erfiðan Covid-faraldur sem dró úr ásókn.
FRÍSK heldur utan um tekjur og aðsókn í íslenskum kvikmyndahúsum og er tölfræðin leiðrétt fyrir verðbólgu, að sögn Daníels. Mikil umræða hafi verið um báðar myndirnar erlendis sem hafi skilað sér í miklum áhuga hingað til lands.
Góða veðrið virtist ekki draga úr ásókn
Daníel segir að rekstraraðilar kvikmyndahúsa hafi vonað það besta en að salan hafi farið langt fram úr væntingum. Þá sé merkilegt að þessar tvær myndir hafi tekið svo stóran skerf af miðasölu helgarinnar skömmu eftir að nýjar kvikmyndir í Mission: Impossible og Indiana Jones myndaflokkunum voru teknar til sýningar.
Gott veður hefur yfirleitt haft neikvæð áhrif á bíóásókn á Íslandi en vart var við undantekningu á þeirri reglu á höfuðborgarsvæðinu um helgina, að sögn Daníels.
Verð bíómiða hefur leitað upp á við á síðustu árum en Daníel segir það þó hafa hækkað minna hér en víða erlendis.
„Það hækkar ekki jafn mikið og verðbólga til dæmis og lítið hefur verið um verðhækkanir. Dýrustu miðarnir hafa helst verið í svona lúxussölum en annars er miðaverðið hér á landi mun ódýrara en annars staðar.“
Ekki meiri ásókn í lúxussali
Christopher Nolan, leikstjóri Oppenheimer, hefur lagt mikið upp úr því að fólk horfi á myndina við bestu aðstæður á hvíta tjaldinu en kvikmyndin var tekin upp á filmu með sérstökum háskerpu myndavélum.
Aðspurður um hvort hærra hlutfall Oppenheimer-miða séu seldir í lúxussali en alla jafna segir Daníel svo ekki vera.
„Við hefðum haldið að hún hefði dregið meira í stærstu salina með stærstu tjöldin. Nolan gerir náttúrlega mikið út á það en það virtist ekki hafa nein áhrif á. Hún hefur líka verið í minni sölum, bara vegna þess að Barbie hefur líka verið að fá stóra skjáinn sem og Mission: Impossible. Salan er bara góð sama hvaða sal hún er í. Við fögnum því.“
Fréttin hefur verið uppfærð.