Fjör með Bylgjulestinni í Hljómskálagarðinum Bylgjulestin 26. júlí 2023 08:31 Bylgjulestin mætti í Hljómskálagarðinn síðasta laugardag. Þessi unga stúlka vann sumarleik Bylgjulestarinnar sem nefnist Tengiru? Götubitahátíðin var haldin sömu helgi í garðinum og var mjög góð stemning meðal gesta. Myndir/Hulda Margrét Það var mikið um dýrðir í Hljómskálagarðinum í Reykjavík síðustu helgi þar sem hin árlega Götubitahátíð fór fram.
Bylgjulestin mætti í garðinn á laugardaginn þar sem boðið var upp á skemmtilega dagskrá fyrir fjölskylduna auk þess sem Bylgjan var í beinni milli kl. 12 og 16. Lestarstjórar þennan daginn voru þau Vala Eiríks og Ómar Úlfur. „Við hittum gommu af frábæru fólki í frábæru veðri og það var æðislegt að hafa kappsama krakka hangandi utan á bílnum meðan þau tóku þátt í Tengiru? sem er sumarleikur Bylgjulestarinnar í sumar,“ segir Vala. Vala Eiríks var annar lestarstjóra Bylgjulestarinnar síðasta laugardag. Mynd/Hulda Margrét Hún segir þau Ómar hafa mætt svöng í vinnuna enda nóg af spennandi götubitum í Hljómskálagarðinum þennan daginn. „Við mættum eðlilega svöng og tilbúin að smakka sem flest en taktík okkar var ólík. Fyrsta smakkið okkar var rosa góð og öðruvísi pylsa. Ég tók tvo bita, rosa yfirveguð og flott stelpa. Ómar minn sporðrenndi aftur á móti tveimur pylsum. Ekki það að sjálfstjórnin dempaðist með hverju smakkinu og ég endaði daginn með verki. En það var samt gaman.“ Ómar Úlfur var lestarstjóri Bylgjulestarinnar ásamt Völu Eiríks. Mynd/Hulda Margrét Boðið var upp á leiktæki og hoppukastala, sápukúlufjör, andlitsmálningu, brjóstsykursgerð og margt fleira. Samstarfsaðilar Bylgjunnar settu upp leiki og fyrstu krakkarnir sem mættu fengu gjafapoka og Hekla bauð upp á bílasýningu. Skoðaðu myndir frá heimsókn Bylgjulestarinnar í Hljómskálagarðinn á laugardag. Myndir/Hulda Margrét Um 30 matarvagnar og sölubásar voru í garðinum sem buðu upp á ljúffenga götubita af öllum stærðum og gerðum. Samhliða Götubitahátíðinni fór fram götubitakeppnin European Street Food Awards sem er haldin víða um Evrópu. Silli Kokkur vann keppnina um besta götubitann og keppnina um götubíl fólksins, Komo vann keppnina um besta smábitann og Mijita vann keppnina um besta grænmetisréttinn. Bylgjulestin og Götubitahátíðin voru saman í Hljómskálagarðinum. Myndir/Hulda Margrét Laugardaginn 29. júlí verður Bylgjulestin við á hafnarsvæðið í Húsavík þar sem lestarstjórarnir Svali og Ómar Úlfur verða í beinni útsendingu frá kl. 12-16 úr Bylgjulestarbílnum. Það verður mikið fjör á hafnarsvæðinu þar sem m.a. verður boðið upp á Nóakroppskast, bílasýningu frá Heklu og gjafapoka frá Bylgjunni. Einnig verður tívolí fyrir krakkana, froðurennibraut, tónleikar, hinsegin ganga, matarvagnar og allskonar glens. Kíktu við og taktu þátt í fjörinu. Svalaðu þorstanum með Appelsíni án sykurs, gæddu þér á góðgæti frá Nóa Síríus og skemmtu þér með okkur í boði Orku náttúrunnar, Heklu, Samgöngustofu, Vodafone og Nettó Bylgjulestin, björt og brosandi um land allt í sumar.
Bylgjan Bylgjulestin Tónlist Ferðalög Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira