Áfram sumar og sól í dag Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. júlí 2023 07:19 Það verða rólegheit í veðri næstu vikuna, sumar og sól. Vísir/Vilhelm Það verður áfram bjart og hlýtt í suðvesturfjórðungi landsins, en norðan- og austanlands verður áfram skýjað og lítilsháttar væta. Það verður norðaustlæg átt og strekkingur á norðvestanverðu landinu og með suðausturströndinni. Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings um veðrið í dag á vef Veðurstofunnar. Hiti nær frá sjö stigum við norðausturströndina upp í átján stig suðvestanlands. Víða fimm til þrettán metrar á sekúndu. Veðrið leikur við suðvesturhornið í dag.Veðurstofan Á Reykjanesskaga hefur vindur verið hægbreytilegur, en eftir hádegi eigi norðanátt að hafa völdin þar og beina mengun frá eldgosinu til suðurs. Þá bætir heldur í úrkomu austanlands í kvöld. Á morgun verður hægari austlæg eða breytileg átt. Þá verður bjart með köflum á Vesturlandi, dálítil rigning á Suðausturlandi en skýjað með köflum og stöku skúrir inn til landsins. Hiti breytist lítið. Veðurfræðingar segja lægð suður af Íslandi stjórna veðrinu á landinu um þessar mundir en um helgina missi hún tökin og fjarlægist. Þá taki við hæg breytileg átt á öllu landinu, bjart verði með köflum en skúrir á stöku stað. Þessi rólegheit í veðri eiga síðan að standa fram í næstu viku. Veðurhorfur á landinu næstu daga Svona verða horfurnar á landinu næstu daga samkvæmt Veðurstofunni:
Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings um veðrið í dag á vef Veðurstofunnar. Hiti nær frá sjö stigum við norðausturströndina upp í átján stig suðvestanlands. Víða fimm til þrettán metrar á sekúndu. Veðrið leikur við suðvesturhornið í dag.Veðurstofan Á Reykjanesskaga hefur vindur verið hægbreytilegur, en eftir hádegi eigi norðanátt að hafa völdin þar og beina mengun frá eldgosinu til suðurs. Þá bætir heldur í úrkomu austanlands í kvöld. Á morgun verður hægari austlæg eða breytileg átt. Þá verður bjart með köflum á Vesturlandi, dálítil rigning á Suðausturlandi en skýjað með köflum og stöku skúrir inn til landsins. Hiti breytist lítið. Veðurfræðingar segja lægð suður af Íslandi stjórna veðrinu á landinu um þessar mundir en um helgina missi hún tökin og fjarlægist. Þá taki við hæg breytileg átt á öllu landinu, bjart verði með köflum en skúrir á stöku stað. Þessi rólegheit í veðri eiga síðan að standa fram í næstu viku. Veðurhorfur á landinu næstu daga Svona verða horfurnar á landinu næstu daga samkvæmt Veðurstofunni: Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en 5-10 með suðurströndinni. Bjartviðri á Vesturlandi, rigning af og til á Suðausturlandi, en skýjað með köflum og stöku skúrir í öðrum landshlutum. Þokuloft við norður- og austurströndina. Hiti átta til átján stig, hlýjast á Vesturlandi, en svalast í þokunni. Á sunnudag og mánudag: Hæg breytileg átt. Bjart með köflum á landinu, en skúrir á stöku stað. Þokubakkar við norður- og austurströndina. Hiti víða tólf til sautján stig að deginum, en mun svalara í þokunni. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu en úrkomulítið norðan- og austanlands, en víða bjart sunnan- og vestanlands og líkur á skúrum, einkum síðdegis. Heldur kólnandi norðaustantil, en annars breytist hiti lítið.
Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en 5-10 með suðurströndinni. Bjartviðri á Vesturlandi, rigning af og til á Suðausturlandi, en skýjað með köflum og stöku skúrir í öðrum landshlutum. Þokuloft við norður- og austurströndina. Hiti átta til átján stig, hlýjast á Vesturlandi, en svalast í þokunni. Á sunnudag og mánudag: Hæg breytileg átt. Bjart með köflum á landinu, en skúrir á stöku stað. Þokubakkar við norður- og austurströndina. Hiti víða tólf til sautján stig að deginum, en mun svalara í þokunni. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu en úrkomulítið norðan- og austanlands, en víða bjart sunnan- og vestanlands og líkur á skúrum, einkum síðdegis. Heldur kólnandi norðaustantil, en annars breytist hiti lítið.
Veður Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira