Það er gaman að koma á Hlemmiskeið í Skeiða og Gnúpverjahreppi því þar eru áhugaverðir hlutir að gerast þegar búskapur er annars vegar. Það eru þau Ævar Austfjörð og Ása Sif Tryggvadóttir, sem eru bændur á bænum en þau hófu nýlega búskap þar. Þau stunda svokallaðan „Auðgandi landbúnað”, sem þýðir að náttúran, sér um sig sjálf helst án utanaðkomandi aðstoðar.

„Það snýst um að nota, sem minnst af tækjum og sem minnst af aðkeyptum áburði, útsæði og öðru slíku. Reyna að plægja sem minnst og helst ekkert, ekki róta í jörðinni heldur að láta náttúruna sjá um það með því að beita skepnum á jörðina til þess að gera það rask, sem þarf að eiga sér stað til þess að jörðin taki við sér,” segir Ævar.
Hænur og endur eru á Hlemmiskeiði þar sem hænurnar hafa sinn eigin bíl til að vera í og endurnar synda í skurðinum.
„Ég fékk ekki skoðun á bílinn en skilagjaldið á hann er 20.000 krónur en hænsnakofi kostar 250.000 krónur þannig að þetta var dílinn, ég bara bauð þeim að búa þarna,” segir Ævar og skellihlær.

Og á bænum eru holdakjúklingar sem eru aldir upp til matar í sérstökum færukvíjum, sem eru færðar um einn reit á dag þannig að fuglarnir geta unnið upp landið með því að éta grasið og hreina upp mosann. Ævar segir að með því verði til betra og hollara kjöt.

Það eru líka heimalningar á bænum, sem Ása sér um og svo eru það nautin, sem ber öll nöfn þekktra tónlistarmanna.

„Þessir stóru eru skýrðir í höfuðið á íslenskuðum röppurum og þessir minni eru eldri tónlistarmenn eins og Bubbi og Helgi Björns. Þeir eru hérna allir. Þarna sjáum við Erp, Erpur er þessi hvíti. Svo sjáum við Bent hérna, herra hnetusmjör og Aron Van, þeir eru allir þarna,” segir Ása Sif um leið og hún tekur fram að uppáhalds nautin hjá henni séu Flóni, Erpur og Birnir.
En Bubbi Morthens?
„Já, hann er mjög góður og Helgi Björns og Páll Óskar náttúrulega, það má ekki gleyma honum,” segir Ása Sif og hlær.
