Enn skorar Messi og Inter Miami tryggði sér titilinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. ágúst 2023 10:16 Lionel Messi og félagar tryggðu sér bikarmeistaratitilinn í nótt. Tim Nwachukwu/Getty Images Inter Miami tryggði sér deildabikarameistaratitilinn í nótt með sigri gegn Nashville í hádramatískri vítaspyrnukeppni. Staðan að venjulegum leiktíma loknum var 1-1, þar sem Lionel Messi var á skotskónum fyrir Inter Miami.
Messi skoraði sitt tíunda mark í aðeins sínum sjöunda leik fyrir liðið þegar hann kom Inter Miami í forystu á 23. mínútu leiksins. Fafa Picault jafnaði þó metin fyrir Nashville eftir um klukkutíma leik og það reyndist seinasta mark venjulegs leiktíma. Því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara. Bæði lið skoruðu úr fjórum spyrnum af fimm þar sem Messi og Sergio Busquets skoruðu úr fyrstu tveimur spyrnum Inter Miami. Randall Leal klikkaði á annarri spyrnu Nasville áður en Victor Ulloa misnotaði fimmtu spyrnu Inter Miami og því var farið í bráðabana. Hvorugt liðið virtist geta klikkað í bráðabananum og úrslitin réðust ekki fyrr en markverðirnir stigu á punktinn. Drake Callender skoraði fyrir Inter Miami, en Elliot Panicco misnotaði elleftu spyrnu Nashville og þar með voru úrslitin ráðin. Inter Miami fagnar því deildabikarmeistaratitlinum og fer inn í tímabilið með sjálfstraustið í botni, en Nashville þarf að gera sér silfrið að góðu. David Beckham and Inter Miami are in love with Lionel Messi 💖 pic.twitter.com/45LxoAoPjR— GOAL (@goal) August 20, 2023
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Körfubolti 76ers sóttu sigur úr Garðinum Körfubolti Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og fótbolti Sport Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Fótbolti Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Fótbolti Fleiri fréttir Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Sjá meira