Er kaffið á kaffistofunni ykkar sjálfbært? Te og kaffi 23. ágúst 2023 09:22 Kaffið frá íslenska vörumerkinu Te & Kaffi er frábær og sjálfbær kostur fyrir vinnustaði sem vilja vistvænt og bragðgott kaffi. Sjálfbærni er margnotað hugtak á okkar tímum og mikilvægt að inntak þess varðveitist. Í raun er lykilhlutverk fyrirtækja, óháð stærð og umfangi rekstrar, að stefna að sjálfbærni í bæði rekstri og framleiðslu svo starfsemin hafi sem minnst áhrif á umhverfið.
Fyrirtæki sem taka þátt í hringrásarhagkerfinu, vinna að kolefnishlutleysi eða stefna að aukinni sjálfbærni, geta bætt kaffivali á listann sem endurspeglar umhverfisgildi þeirra. Kaffið frá íslenska vörumerkinu Te & Kaffi er frábær og sjálfbær kostur fyrir vinnustaði sem vilja vistvænt og bragðgott kaffi. Íslenska kaffibrennslan hefur á síðustu árum gert markvissar breytingar á verkferlum sínum og fært sjálfbærni fyrirtækisins á nýtt stig. Í nýrri skýrslu fyrirtækisins má lesa eftirfarandi út úr sjálfbærnimælingum: Losun gróðurhúsalofttegunda dróst verulega saman á milli ára Losunarkræfni lækkaði Allar kaffiumbúðir eru orðnar 100% niðurbrjótanlegar Kaffibrennslan er drifin áfram með vistvænum orkugjafa Kaffibrennsla Te & Kaffi í Hafnarfirði ristar kaffibaunirnar með metangasi, umhverfisvænum orkugjafa sem verður til úr lífrænum úrgangi hjá gas- og jarðgerðarstöð Sorpu (GAJU). Þar verður til áhugaverð hringrás; hægt er að nýta kaffiumbúðirnar sem orkugjafa fyrir framleiðslu á sjálfu kaffinu. Kaffibrennslan er enn fremur sú fyrsta á landinu til að fá lífræna vottun frá Tún – vottunarstofu. KaffibrennslaTe & Kaffi í Hafnarfirði ristar kaffibaunirnar með metangasi, umhverfisvænum orkugjafa sem verður til úr lífrænum úrgangi hjá gas- og jarðgerðarstöð Sorpu. Kaffiumbúðir Te & Kaffi eru auk þess gerðar úr lífrænum efnum og má því flokka með lífrænu sorpi. Jafnvel kaffihylkin eru niðurbrjótanleg, enda gerð úr plöntusterkju, og þannig flokkast allar umbúðirnar með lífrænu sorpi. Kaffið frá Te & Kaffi skilur þannig „ekkert eftir sig nema góða bragðið,“ hvort sem það er malað, ómalað, í hylkjum eða púðum. Ef kaffistofan þín er á höttunum eftir umhverfisvænu kaffi, í ýmsum bragðtegundum, hvetjum við þig til að hafa samband við kaffiþjónustu Innnes, kaffithjonusta@innnes.is. Við erum gríðarlega stolt af þeim árangri sem við höfum náð í umhverfismálum án þess að fórna gæðum á kaffinu okkar. Umbúðirnar halda gæðum vörunnar fullkomlega sem var ekki hægt með niðurbrjótanlegar umbúðir fyrir nokkrum árum síðan. Kristín María Dýrfjörð er eigandi Te & Kaffi.
Matur Drykkir Samfélagsleg ábyrgð Mest lesið Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira