Stelpurnar deildu myndum frá deginum með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.
Dagurinn hófst með því að þær völdu skrautlegan fatnað á hver aðra, eða svokallað thrifted þema. Ína María var látin klæðast gulum Þrista jakka, Adidas íþróttagalla og Bónus derhúfu. Fótboltaföt urðu fyrir valinu fyrir Sunnevu sem klæddist einnig takkaskóm. Birgitta Líf var í skærbleikum bol og íþróttabuxum með hlébarða mynstri á meðan Kristín Péturs var í brjóstahaldara, stuttu pilsi, loðvesti og bláum íþróttaskóm.
Myndir segja fleiri en þúsund orð:





Golf og freyðivín í Haukadal
Förinni var heitið á Hótel Geysi í Haukadal þar sem hópurinn mundaði við golfkylfinu. Þegar upp á hótelherbergi var komið kepptu stelpurnar í hæfileikakeppni. Birgitta Líf og Sunneva komu fylgjendum sínum eflaust á óvart þegar þær sýndu listir sínar með því að töfra fram hvert blöðrudýrið á eftir öðru.
Um kvöldið snæddu þær á veitingastað hótelsins þar sem þær skáluðu í fljótandi veigum fram eftir kvöldi.







Stjörnumerki og glamúr
Klæðnaður kvöldins var í anda stjörnumerkis hverrar og einnar en stelpurnar völdu föt sem þeim þóttu einkenna sitt stjörnumerki. Birgitta Líf klæddist bleikum fjarðatopp og ljósu pilsi og er hún vog í stjörnumerki. Ástrós Trausta og Kristín Péturs eru báðar í sporðdreka merkinu og klæddust þær báðar ólíkum en dökkum fatnaði sem er einkennandi fyrir hina dularfullu áttfætlu.









