Árið 2021 gaf Floni út plötuna Demotape 01. Hans þekktustu plötur eru þó óumdeilanlega Floni og Floni 2. Nú virðist sem svo að þriðja platan sem ber sama heiti og listamaðurinn sjálfur sé í bígerð.
Floni var á meðal þeirra listamanna sem tróðu upp á Tónaflóði Rásar 2 á Menningarnótt. Á meðan Floni tryllti lýðinn mátti á einum tímapunkti sjá á skiltum sviðsins við Arnarhól, stórum stöfum, „Floni 3“.

Af þessu er nokkuð óhætt að ætla að næsta plata rapparans sé í bígerð, og því geti aðdáendur hans haft eitthvað til að hlakka til. Hvenær platan kemur út skal þó ósagt látið.
Floni, sem réttu nafni heitir Friðrik Róbertsson, fékk nýtt hlutverk seint á síðasta ári þegar hann eignaðist son með kærustu sinni, Hrafnkötlu Unnarsdóttur