Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. október 2026 15:15 Plötusnúðurinn Mellí 777 mun ekki hita upp fyrir Azealiu Banks í Austurbæjarbíói í desember. Plötusnúðurinn Melkorka Þorkelsdóttir, Mellí 777, hefur hætt við að hita upp fyrir bandarísku tónlistarkonuna Azealiu Banks í Austurbæjarbíói þann 3. desember. Í kjölfar úrslita forsetakosninganna í Brasilíu síðustu helgi ákvað Melkorka að taka afstöðu gegn síónískum skoðunum Banks og með Palestínu og hætta við að hita upp fyrir hana.
Melkorka greindi frá þessari ákvörðun sinni á Instagram-hringrás sinni í gær. „Eftir að hafa hugsað málið fram og til baka vildi ég tilkynna að ég er ekki lengur að hita upp fyrir Azealiu Banks,“ sagði hún þar. Sjá einnig: Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói „Þrátt fyrir að hún hafi verið svo áhrifamikill listamaður fyrir mig síðan ég var unglingur held ég að þessi tímasetning henti ekki,“ bætti hún við. Melkorka sagðist hvorki vera aktívisti né pólitíkus og hafi lengst af litið svo á að hún væri áhrifalítill plötusnúður „á pínulitla Íslandi“ með 1.800 samfélagsmiðlafylgjendur. DJ Mellí þeytti skífum.Róbert Arnar Hún kunni jafnframt enn að meta áhrif Azealiu, sem umdeilds en áhrifamikils tónlistarmanns, á elektrópopptónlist, sérstaklega fyrir að endurvekja Vogue/Ballroom-tónlist í poppi. „Hins vegar eftir að hafa vakað fram á nótt síðastliðinn sunnudag að fylgjast með Lula vinna forsetakosningarnar í Brasilíu á móti pro-Ísrael fasískum frambjóðanda varð mín óvissa gagnvart þessu máli kristaltær og staðfesti mikilvægi þess að við getum öll tekið afstöðu fyrir því sem við trúum á,“ bætti hún svo við. Melkorka kvittaði svo undir færsluna með orðunum „Palestina livre“ sem þýðir „Frjáls Palestína“ á portúgölsku. Síonisti sem er nýfluttur til Tel Aviv Azealia Banks kom fyrst fram á sjónarsviðið með slagarann „212“ og hefur síðan þá gefið út plöturnar Broke With Expensive Taste (2014) og Zenzealia (2026). Á síðustu árum hefur þó meira farið fyrir umdeildum yfirlýsingum hennar en tónlistarsköpun. Banks hefur lýst því yfir að vegna rasisma araba í garð svartra sé hún síonisti og dyggur stuðningsmaður Ísraela. Fyrr í mánuðinum tilkynnti hún svo að hún væri flutt til Tel Aviv í aðdraganda tónleika sinna þar í landi. Moving in. If you would have told me years ago id end up moving to Tel Aviv and liking it, I would have said youre crazy 🤪 🇮🇱 https://t.co/dIDiZ7I0gH— AZEALIA BANKS質疑只在 (@iiwasinthee212) October 6, 2026 Þá hefur hún gagnrýnt hugmyndir um tveggja ríkja lausna milli Ísraela og Palestínubúa og sakað BDS-sniðgönguhreyfinguna um gyðingaandúð. Þá telur hún að Palestína ætti ekki að vera sjálfstætt land heldur að palestínsk landsvæði ættu öll að tilheyra Ísrael. Fjandsamlegar yfirlýsingar Banks um samkynhneigða og trans fólk hafa einnig fallið í grýttan jarðveg sem og stuðningur við Donald Trump í Epstein-málinu með þeim rökum að kynlíf með táningum hafi lengi ekki þótt tiltökumál. Mellí er ekki sú eina sem hefur tjáð sig um tónleika Azealiu hér á landi. Listakonan og aðgerðasinninn Julia Mai hvatti fólk í gær til að sniðganga tónleika Banks í Austurbæjarbíói vegna hvítþvotts hennar á þjóðarmorði Ísraela í Palestínu. „Oft er talað um að það eigi að aðskilja listina frá listamanninum en þegar fólk styður Ísrael í miðju þjóðarmorði, hvernig getum við réttlætt þau orð?“ sagði Julia í myndbandi sem hún birti á Instagram og fylgdu með skjáskot af umdeildum orðum Banks um Ísrael. View this post on Instagram A post shared by Julia Mai (@juliamaiart)
Tónleikar á Íslandi Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Bandaríkin Palestína Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Sjá meira