Elvar Örn magnaður í sigri á meisturunum Smári Jökull Jónsson skrifar 10. september 2023 16:10 Elvar Örn Jónsson með landsliðinu VÍSIR/VILHELM Elvar Örn Jónsson var markahæstur í liði Melsungen sem vann frábæran útisigur á meisturum Kiel í þýska handboltanum í dag. Þá var Ómar Ingi Magnússon markahæstur hjá Magdeburg sem vann sigur í sínum leik.
Melsungen hefur farið frábærlega af stað í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og var fyrir leikinn gegn Kiel búið að vinna sigur í öllum þremur leikjum sínum á tímabilinu. Kiel tapaði í síðasta leik gegn Flensburg en liðið er ríkjandi meistari. Og Melsungen ætlar sér greinilega ekkert að hætta fyrst þeir eru byrjaðir á annað borð. Liðið vann frábæran fimm marka sigur á Kiel á útivelli í dag. Lokatölur 35-30. Elvar Örn Jónsson var frábær í liði Melsungen. Hann skoraði níu mörk og var markahæstur í sínu liði. Arnar Freyr Arnarsson skoraði þrjú mörk af línunni og nýtti öll sín skot. Leipzig undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar vann góðan 36-30 sigur á Wetzlar á heimavelli. Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson skoruðu sitt markið hvor fyrir Leipzig sem vann þar með sinn annan leik á tímabilinu. Ómar Ingi Magnússon skoraði átta mörk fyrir Magdeburg sem vann öruggan sigur á Hamburg á heimavelli. Sjö marka Ómars komu af vítalínunni og vonandi liggur leiðin áfram upp á við hjá Ómari sem er að koma til baka eftir erfið meiðsli. Lokatölur í Magdeburg 35-24. Ýmir Már Gíslason og Arnór Snær Óskarsson voru báðir í leikmannahópi Rhein-Neckar Löwen sem tapaði 34-29 á útivelli gegn Hannover-Burgdorf. Ýmir Örn skoraði tvö mörk fyrir Ljónin en Arnór Snær komst ekki á blað. Heiðmar Felixson er þjálfari Hannover-Burgdorf sem er í öðru sæti deildarinnar eftir sigurinn.
Þýski handboltinn Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Enski boltinn Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira