Viðskipti innlent

Arnar Geirsson frá Connecticut til New York

Jón Þór Stefánsson skrifar
Arnar Geirsson var yfirlæknir hjartaskurðlækninga hjá Yale-New Haven-sjúkrahúsinu í Connecticut frá 2016 til þessa árs. Nú heldur hann til New York.
Arnar Geirsson var yfirlæknir hjartaskurðlækninga hjá Yale-New Haven-sjúkrahúsinu í Connecticut frá 2016 til þessa árs. Nú heldur hann til New York. Aðsend

Arnar Geirsson, hjartaskurðlæknir, hefur verið ráðinn forstöðumaður hjarta- og æðasjúkdómastofu og yfirskurðlæknir hjartalokuprógramms NewYork Presbyterian-sjúkrahússins og Irving læknamiðstöðvarinnar hjá Columbia-háskólanum í New York-borg. Hann er einnig skipaður prófessor í skurðlækningum við brjósthols- og æðaskurðlæknadeild Columbia-háskólans.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar er því haldið fram að New York Presbyterian sé einn af fremstu spítölum í heimi, ekki hvað síst í meðferð hjarta- og æðasjúkdóma. Hjartalokuprógramm NewYork-Presbyterian sé þá eitt það öflugasta í Bandaríkjunum.

Arnar mun í sínu nýja hlutverki leiða teymi hjartalækna og hjartaskurðlækna. Í tilkynningunni segir að í því muni felast að efla teymið, sérstaklega varðandi nýsköpun hjartaskurðaðgerða. Þá muni hann einnig þjálfa og leiðbeina næstu kynslóð lækna sem sérhæfa sig í meðferð hjartalokusjúkdóma.

Arnar útskrifaðist frá læknadeild Háskóla Íslands 1997 og stundaði sérnám í almennum skurðlækningum í Yale-háskólanum og hjartaskurðlækningum í Pennsylvania-háskólanum.

Lengst af hefur hann unnið sem hjartaskurðlæknir hjá Yale-New Haven-sjúkrahúsinu en hann hefur einnig starfað sem skurðlæknir á Landspítalanum árin 2012 til 2016. Hann var einnig yfirlæknir hjartaskurðlækninga hjá Yale-New Haven-sjúkrahúsinu í Connecticut frá 2016 til þessa árs.

Arnar er giftur Dr. Sigríði Benediktsdóttur, hagfræðingi, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fyrirlesara við Alþjóðaskóla Columbia-háskólans. Saman eiga þau þrjá syni sem eru búsettir í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×