Spá Vísis í Subway kvenna (6.-10.): Leynist spútniklið deildarinnar hér? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. september 2023 12:00 Ísold Sævarsdóttir er ein af þessum bráðefnilegu leikmönnum Stjörnunnar sem fá tækifæri til að stíga sín fyrstu skref í Subway deildinni í vetur. Vísir/Hulda Margrét Subway deild kvenna í körfubolta hefst annað kvöld en hún tekur miklum breytingum á milli tímabila. Fleiri lið eru nú í deildinni, tvískipting mun eiga sér stað um mitt tímabil og tvöfalt fleiri lið komast í úrslitakeppnina sem þýðir að deildin verður allt öðruvísi en í fyrra. Vísir kynnir liðin tíu til leiks næstu tvo daga og í dag er komið að þeim liðum sem við teljum að endi í neðri hlutanum þegar deildinni verður skipt í tvennt. Það er hætt við því að það aukist getumunurinn í deildinni þegar þrjú ný lið bætast við deildina en það boðar gott að tvö af liðunum sem komust upp fóru alla leið í undanúrslit bikarsins í fyrra og það þriðja hefur styrkt sig verulega fyrir átök vetrarins. Snæfell og Stjarnan eru komin aftur í hóp þeirra bestu eftir nokkra ára fjarveru en bæði félögin gáfu eftir sætið sitt í efstu deild á sínum tíma. Síðan hafa þau byggt upp kvennalið sín og taka stóra skrefið í ár. Stjörnuliðið er mun betur sett þegar kemur að ungum og upprennandi leikmönnum sem hafa verið sigursælar í sínum flokkum undanfarin ár. Það reynir meira á Snæfellsliðið að safna liði en félagið á líka margra frábæra leikmenn í öðrum liðum deildarinnar. Liðið missti líka fyrirliða sinn í barneignarfrí og er okkar spá rætist þá verður þetta mjög krefjandi tímabil í Hólminum í vetur. Þórskonur urðu þrisvar sinnum Íslandsmeistarar á sjöunda og áttunda áratugnum (1969, 1971 og 1976) en hafa ekki spilað í efstu deild í 45 ár. Það er hugur í norðankonum fyrir sögulega endurkomu þeirra. Liðið hefur styrkt sig í sumar og hefur alla burði til að halda sér í deildinni. Það mun því reyna á Fjölni og Breiðablik að halda sér fyrir ofan nýliða deildarinnar. Bæði liðin gáfu mikið eftir á síðustu leiktíð en ætla sér örugglega að komast í efri hlutann í vetur. Fjölnisliðið er í betri stöðu en nýr þjálfari þarf að byggja upp sjálfstraust liðsins á ný eftir erfiðan síðasta vetur. Ef okkar spá rætist þá verður það erfitt ekki síst fyrir Blikaliðið sem er ekki líklegt til afreka í vetur. Hér fyrir neðan má sjá hvernig við spáum hvaða lið enda í sjötta til tíunda sæti deildarinnar. Stjörnukonur eru vissulega mjög ungar en þær hafa unnið fjölda titla í yngri flokkum síðustu ár.Vísir/Hulda Margrét 6. sæti - Stjarnan Síðustu tímabil 2022-23: 1. sæti í B-deild 2021-22: 9. sæti í B-deild 2020-21: 7. sæti í B-deild 2019-20: Ekki með lið 2018-19: 3. sæti í A-deild (Undanúrslit) Árið í fyrra: Stjörnuliðið kom sér heldur betur á kortið í fyrra með því að vinna 1. deildina með sannfærandi hætti og komast síðan alla leið í undanúrslit bikarkeppninnar. Liðið byggði á yngri leikmönnum og erlendi leikmaður liðsins var ekki í aðalhlutverki eins og hjá flestum öðrum liðum. Besta frétt sumarsins: Unnur Tara Jónsdóttir snýr til baka á körfuboltavöllinn og samdi við Stjörnuna. Unnur er leikmaður sem lætur verkin tala inn á vellinum á báðum endum vallarins og reynsla hennar gæti reynst ungu Stjörnuliði ómetanlegt. Áhyggjuefnið: Stjörnuliðið er eitt yngsta liðið sem hefur spilað í efstu deild kvenna. Þær eru sem betur fer einu ári eldri en í fyrra þegar þær sýndu styrk sinn með því að komast í Laugardalshöllina í bikarnum. Áfallið að missa landsliðskonuna Diljá Ögn Lárusdóttir í krossbandsslit kallar á enn meiri ábyrgð á enn yngri leikmenn liðsins. Þarf að eiga gott tímabil: Bakvörðurinn Ísold Sævarsdóttir og framherjinn Kolbrún María Ármannsdóttir eru tvær af efnilegustu körfuboltakonum landsliðsins sem báðar fá væntanlega stórt hlutverk í vetur. Hvernig þær ráða við þetta skref mun breyta miklu fyrir hversu langt Stjörnuliðið fer. Bjartsýni: Verða spútniklið vetrarins og tryggja sér sæti í A-hlutanum. Svartsýni: Verða ekki í baráttunni um fimm efstu sætin og skríða inn í úrslitakeppnina í gegnum b-hlutann. Þórskonur eru komnar upp í efstu deild kvenna í fyrsta sinn síðan 1978.@thormflkvk 7. sæti - Þór Akureyri Síðustu tímabil 2022-23: 2. sæti í B-deild 2021-22: 5. sæti í B-deild 2020-21: Ekki með lið 2019-20: Ekki með lið 2018-19: 3. sæti í B-deild Árið í fyrra: Þórsliðið var ekki langt frá því að tryggja sér sæti í deildinni eftir gömlu leiðinni þefar liðið tapaði í úrslitaeinvíginu á móti Stjörnunni. Liðið endaði í öðru sæti í deildinni og fór síðan alla leið í oddaleik á móti deildarmeisturunum. Þór fékk hins vegar sætið þegar fjölgað var í deildinni. Besta frétt sumarsins: Þórsliðið eignaðist A-landsliðskonu í sumar þegar bakvörðurinn Eva Wium Elíasdóttir var valin í hópinn fyrir leiki á móti Svíum en hún varð fyrsta A-landsliðskona félagsins í næstum því hálfa öld. Áhyggjuefnið: Þórsliðið hefur enga reynslu sem félag að glíma við þau bestu kvennaliðin í landinu enda ekki verið í efstu deild kenna í 45 ár. Það mun því reyna á félagið að stíga þetta stóra skref. Liðið hefur þó vissulega styrkt sig og mætir með sjálfstraust eftir uppgöngu síðustu ára. Þarf að eiga gott tímabil: Heiða Hlín Björnsdóttir býr af dýrmætri reynslu af því að hafa spilað í efstu deild með bæði Snæfelli og Fjölni. Það er stórt skref að fara upp og því reynir mikið á reynslubolta liðsins að leiða liðið í þessu ævintýri. Bjartsýni: Verða spútniklið vetrarins og tryggja sér sæti í A-hlutanum. Svartsýni: Verða ekki í baráttunni um fimm efstu sætin og komast ekki í úrslitakeppnina í gegnum b-hlutann. Dagný Lísa Davíðsdóttir var valin besti leikmaðurinn í deildinni tímabilið 2021-22.Vísir/Bára 8. sæti - Fjölnir Síðustu tímabil 2022-23: 6. sæti í A-deild 2021-22: 1. sæti í A-deild (Undanúrslit) 2020-21: 4. sæti í A-deild (Undanúrslit) 2019-20: 1. sæti í B-deild 2018-19: 1. sæti í B-deild Árið í fyrra: Tímabilið var vonbrigði eftir ævintýratímabilið árið áður. Liðið fór út því að vera deildarmeistari í það að vera tuttugu stigum frá því að komast í úrslitakeppnina. Grafarvogsliðið var búið að vera á uppleið í nokkur ár en hlutirnir voru ekki að falla með liðinu í fyrravetur. Besta frétt sumarsins: Réðu Hallgrímur Brynjólfsson sem þjálfara liðsins í maí en það gekk heldur betur vel síðast að fá þjálfara af suðurlandinu. Hallgrímur hefur þjálfað sameiginlegt lið Hamars/Þórs síðustu þrjú ár og gerði þar vel með ungt lið en þekki líka deildina vel eftir að hafa þjálfað lið Hamars og Njarðvíkur. Áhyggjuefnið: Bandaríski leikmaður liðsins er orðin 35 ára gömul. Vissulega reynslumikil og öflugur leikmaður upp á sitt besta en hefur hún burði til að bera upp lið í Subway deildinni. Þarf að eiga gott tímabil: Dagný Lísa Davíðsdóttir var valin best leikmaður ársins þegar Fjölnir varð deildarmeistari 2022 en missti af stórum hluta síðasta tímabils eftir að hafa handleggsbrotnað í desember. Það munar mikið um það ef Dagný nær sínu besta formi á ný. Bjartsýni: Tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Svartsýni: Lenda í fallbaráttu og þurfa að fara í úrslitakeppnina við þrjú lið í 1. deildinni. Anna Soffía Lárusdóttir er í stóru hlutverki hjá Blikum.Vísir/Bára 9. sæti - Breiðablik Síðustu tímabil 2022-23: 7. sæti í A-deild 2021-22: 7. sæti í A-deild 2020-21: 5. sæti í A-deild 2019-20: 7. sæti í A-deild 2018-19: 8. sæti í A-deild Árið í fyrra: Það gekk mikið á hjá Blikum í fyrra þar sem hlutirnir voru ekki að ganga upp. Liðið missti landsliðskonuna Isabellu Ósk Sigurðardóttiur í annað íslenskt lið í upphafi tímabils og skipti síðan um þjálfara fyrir jól. Liðið endaði á því að tapa átta síðustu leikjum sínum og vann ekki heimaleik eftir jól. Besta frétt sumarsins: Miðherjinn Ragnheiður Björk Einarsdóttir ákvað að koma aftur til Breiðabliks eftir að hafa spilað í bandaríska háskólaboltanum undanfarin fjögur ár. Áhyggjuefnið: Blikar sendu erlendu leikmennina heim á miðju síðasta tímabili og treystu á íslenska hópinn sinn til að klára mótið. Flest lið eru með fleiri en einn erlendan leikmann sem gæti gefið liðunum í kringum forskot á Breiðabliksliðið. Þarf að eiga gott tímabil: Anna Soffía Lárusdóttir hefur fengið mikla ábyrgð í Blikaliðinu undanfarin ár og það er engin breyting á því. Öflugur skotmaður sem hefur sýnt Blikum hollustu. Bjartsýni: Tryggja sér sæti í úrslitakeppninni með því að vera eitt af þremur efstu liðunum í b-hlutanum. Svartsýni: Lélegasta lið deildarinnar. Neðsta sætið og fall úr deildinni. Adda Sigríður Ásmundsdóttir og félagar hennar í Snæfelli hafa farið í Höllina og spilað í undanúrslitum bikarsins undanfarin tvö tímabil.Vísir/Hulda Margrét 10. sæti - Snæfell Síðustu tímabil 2022-23: 3. sæti í B-deild 2021-22: 6. sæti í B-deild 2020-21: 7. sæti í A-deild 2019-20: 6. sæti í A-deild 2018-19: 5. sæti í A-deild Árið í fyrra: Snæfellskonur urðu í þriðja sæti í deildinni og töpuðu síðan á móti Þór Ak. í fjórum leikjum í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Annað árið var það hins vegar bikarkeppnin sem var stærsta ævintýrið þar sem Snæfellsstelpurnar komust í Laugardalshöllina annað tímabilið í röð. Besta frétt sumarsins: Snæfell fékk sæti í Subway deildinni á silfurfati í lok maí þegar ÍR gaf eftir sæti sitt í deildinni. Snæfell var því launaður greiðinn frá því fyrir nokkrum árum þegar félagið hætti við keppni í úrvalsdeildinni þrátt fyrir að hafa haldið sætið sínu tímabilið á undan. Áhyggjuefnið: Rebekka Rán Karlsdóttir er í barneignarfríi og verður sárt saknað. Rebekka skilað krefjandi starfi leikstjórnanda og er bæði besti og reyndasti íslenski leikmaður liðsins. Þarf að eiga gott tímabil: Erlendir leikmenn liðsins þurfa bæði að skila sínu sem og að passa vel saman ef Snæfell ætlar að gera eitthvað í vetur. Þetta eru bandarískur bakvörður, finnskur framherji og sænskur miðherji og ættu því að styrkja liðið á þremur mikilvægum svæðum á vellinum. Bjartsýni: Ná einu af þremur efstu sætum b-hlutans eftir skiptin og tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Svartsýni: Lélegasta lið deildarinnar. Neðsta sætið og fall úr deildinni. Subway-deild kvenna Mest lesið Gaf öllum liðsfélögunum iPhone til að sleppa við að syngja Sport Seldu bleika búninginn hennar Herrem fyrir meira en milljón Handbolti Daníel: Ég fór í smá ævintýra starfsemi Körfubolti Missir af Ólympíuleikunum á heimavelli eftir slys á æfingu Sport Stjarna Manchester City hætti næstum því í fótbolta Enski boltinn „Slakasti leikur okkar síðan ég tók við liðinu“ Sport Mo Salah fjarlægði nafn Liverpool af miðlum sínum Enski boltinn „Leið vel þegar ég fór inn úr færinu“ Handbolti Uppgjörið: Ármann-Keflavík 94-107 | Öruggt hjá Keflvíkingum Körfubolti Uppgjörið: Þór Þ. - Valur 117-119 | Vals sigur eftir tvær framlengingar Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Ármann-Keflavík 94-107 | Öruggt hjá Keflvíkingum Daníel: Ég fór í smá ævintýra starfsemi Uppgjörið: Þór Þ. - Valur 117-119 | Vals sigur eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Tindastóll 98-90 | Njarðvíkingar skelltu Stólunum Átti sumar engu öðru líkt „Ég held að bæði lið séu ekkert himinlifandi með sína frammistöðu“ Uppgjörið: Grindavík-KR 78-77 | Arnór Tristan með sigurkörfuna Þjálfari og leikmaður í NBA handteknir Sá eftirsóttasti treystir bara á pabba gamla Þrenna Maddie Sutton dugði ekki á Hlíðarenda Elvar tapaði á grátlegan hátt á móti gömlu félögunum Uppgjör: Keflavík - Haukar 94-84 | Keflvíkingar tóku Íslandsmeistarana Nablinn sparkaði upp hurðinni í byrjun þáttarins Pedersen með landsliðið til 2029 Breyta reglum eftir brellu Stjörnunnar Troðslur og Braveheart fagn í Kemi tilþrifum umferðarinnar Uppgjörið: Grindavík-Stjarnan 79-66 | Frábær fjórði hjá Grindavík Nýliðar KR stöðvuðu sigurgöngu Njarðvíkur og fyrsti sigurinn í 65 ár Tryggvi frábær í öruggum Evrópusigri Músin Ragnar og stemning Stólanna Keflavík fær erlendan leikmann Keflvíkingar komu til baka í seinni hálfleik Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 99-93 | Álftanes vann Njarðvík í bikarnum í hörkuleik Stólarnir skotnir niður á jörðina í Tékklandi Bílstjóri grýttur til dauða eftir körfuboltaleik Nýr Ármenningur „með allan pakkann“ og pabba sem vann NBA Skagamenn bæta fyrrum landsliðsmanni Serbíu í hópinn Kevin Durant semur við Rockets til tveggja ára Vallarþulurinn í Keflavík lét Ægi Þór heyra það Teitur segir að Keflavík eigi að stefna á titilinn Sjá meira
Síðustu tímabil 2022-23: 1. sæti í B-deild 2021-22: 9. sæti í B-deild 2020-21: 7. sæti í B-deild 2019-20: Ekki með lið 2018-19: 3. sæti í A-deild (Undanúrslit)
Síðustu tímabil 2022-23: 2. sæti í B-deild 2021-22: 5. sæti í B-deild 2020-21: Ekki með lið 2019-20: Ekki með lið 2018-19: 3. sæti í B-deild
Síðustu tímabil 2022-23: 6. sæti í A-deild 2021-22: 1. sæti í A-deild (Undanúrslit) 2020-21: 4. sæti í A-deild (Undanúrslit) 2019-20: 1. sæti í B-deild 2018-19: 1. sæti í B-deild
Síðustu tímabil 2022-23: 7. sæti í A-deild 2021-22: 7. sæti í A-deild 2020-21: 5. sæti í A-deild 2019-20: 7. sæti í A-deild 2018-19: 8. sæti í A-deild
Síðustu tímabil 2022-23: 3. sæti í B-deild 2021-22: 6. sæti í B-deild 2020-21: 7. sæti í A-deild 2019-20: 6. sæti í A-deild 2018-19: 5. sæti í A-deild
Subway-deild kvenna Mest lesið Gaf öllum liðsfélögunum iPhone til að sleppa við að syngja Sport Seldu bleika búninginn hennar Herrem fyrir meira en milljón Handbolti Daníel: Ég fór í smá ævintýra starfsemi Körfubolti Missir af Ólympíuleikunum á heimavelli eftir slys á æfingu Sport Stjarna Manchester City hætti næstum því í fótbolta Enski boltinn „Slakasti leikur okkar síðan ég tók við liðinu“ Sport Mo Salah fjarlægði nafn Liverpool af miðlum sínum Enski boltinn „Leið vel þegar ég fór inn úr færinu“ Handbolti Uppgjörið: Ármann-Keflavík 94-107 | Öruggt hjá Keflvíkingum Körfubolti Uppgjörið: Þór Þ. - Valur 117-119 | Vals sigur eftir tvær framlengingar Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Ármann-Keflavík 94-107 | Öruggt hjá Keflvíkingum Daníel: Ég fór í smá ævintýra starfsemi Uppgjörið: Þór Þ. - Valur 117-119 | Vals sigur eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Tindastóll 98-90 | Njarðvíkingar skelltu Stólunum Átti sumar engu öðru líkt „Ég held að bæði lið séu ekkert himinlifandi með sína frammistöðu“ Uppgjörið: Grindavík-KR 78-77 | Arnór Tristan með sigurkörfuna Þjálfari og leikmaður í NBA handteknir Sá eftirsóttasti treystir bara á pabba gamla Þrenna Maddie Sutton dugði ekki á Hlíðarenda Elvar tapaði á grátlegan hátt á móti gömlu félögunum Uppgjör: Keflavík - Haukar 94-84 | Keflvíkingar tóku Íslandsmeistarana Nablinn sparkaði upp hurðinni í byrjun þáttarins Pedersen með landsliðið til 2029 Breyta reglum eftir brellu Stjörnunnar Troðslur og Braveheart fagn í Kemi tilþrifum umferðarinnar Uppgjörið: Grindavík-Stjarnan 79-66 | Frábær fjórði hjá Grindavík Nýliðar KR stöðvuðu sigurgöngu Njarðvíkur og fyrsti sigurinn í 65 ár Tryggvi frábær í öruggum Evrópusigri Músin Ragnar og stemning Stólanna Keflavík fær erlendan leikmann Keflvíkingar komu til baka í seinni hálfleik Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 99-93 | Álftanes vann Njarðvík í bikarnum í hörkuleik Stólarnir skotnir niður á jörðina í Tékklandi Bílstjóri grýttur til dauða eftir körfuboltaleik Nýr Ármenningur „með allan pakkann“ og pabba sem vann NBA Skagamenn bæta fyrrum landsliðsmanni Serbíu í hópinn Kevin Durant semur við Rockets til tveggja ára Vallarþulurinn í Keflavík lét Ægi Þór heyra það Teitur segir að Keflavík eigi að stefna á titilinn Sjá meira