Ása Steinarsdóttir er ein af ljósmyndurunum fimm og segir hún markmið sýningarinnar að vekja athygli á ójafnvægi ljósmyndabransans þegar kemur að jafnrétti kynjanna.
„Konur hafa alltaf verið virkar í ljósmyndun, en eru síður ráðnar í verkefni, fá lægri laun og eru í heild minna sjánlegar.“

Spurð hvaðan titill sýningarinnar spretti segir Ása Sprakki vera gamalt íslenskt orð sem þýði dugnaðarkona eða kvenskörungur.
„Í sögulegu tilliti hefur ljósmyndun verið hluti af yfirráðasvæði karla og það er óheppilegt í heimi þar sem öll ættu að njóta hæfileika sinna.
Í heimi þar sem hæfileikar þekkja engin kynjamörk er það óréttlæti enn við líði að kvenljósmyndarar glíma við ójöfn atvinnutækifæri og fá lægri laun en karlmenn í sama geira. Breytingar eru ekki aðeins nauðsynlegar heldur löngu tímabærar.“

Djúpstæð kynjamismunun
Ása fullyrðir að kvenljósmyndarar séu upp til hópa vanmetnir fyrir það eitt að vera konur. „Í starfsgrein þar sem list og kunnátta ætti að vera eini mælikvarðinn á velgengni, er kynjahlutdrægni enn viðvarandi. Tölur sýna að helmingur allra ljósmyndara á Íslandi eru konur. Þrátt fyrir það eru þær aðeins brot af vinnuafli á markaði ljósmyndunar og þegar konur tryggja sér vinnu þá þéna þær oft umtalsvert minna er karlkyns ljósmyndarar fyrir sömu vinnu. Þetta er ekkert annað en djúpstæð kynjamismunun.“

Iðnaðurinn einkennist af karlmönnum
Ástæðurnar á bak við þetta óréttlæti segir hún vera flóknar en um leið óumdeilanlegar „Ljósmyndaiðnaðurinn einkennist af karlmönnum. Staðalmyndir og hlutdrægni eru viðvarandi, þar sem viðskiptavinir stunda frekar viðskipti við karlkyns ljósmyndara, með það fyrir augum að þeir séu hæfari eða áreiðanlegri en konur.
Þessar ranghugmyndir fæðast inn í vítahring sem heldur áfram að koma konum í óhag á þessu sviði.

Gagnast samfélaginu í heild
Karlar gegna mikilvægu hlutverki við að afnema þessa hlutdrægni með því að sýna virkan stuðning og kynna kvenkyns samstarfsmenn sína. Baráttan fyrir jafnrétti kynjanna er ekki barátta sem konur geta eða ættu að há einar. Karlar verða að viðurkenna að það kemur ekki bara í hlut kvenna að berjast fyrir jafnrétti, heldur kemur það í hlut okkar allra. Það gagnast ekki bara konum, heldur samfélaginu í heild.“

Auk Ásu samanstendur sýningin af verkum Unnar Magnadóttur, Eydísar Maríu Ólafsdóttur, Rakelar Rúnar Garðarsdóttur og Ránar Bjargardóttur. Sýningin mun standa út október og verða myndirnar einnig til sölu.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá opnunarhófi sýningarinnar.






