Margoft verið nálægt því að keyra sig í þrot Íris Hauksdóttir skrifar 29. október 2023 07:00 Katrín Amni flutti nýverið til Ítalíu ásamt dætrunum Antoníu, 10 ára og Karítas 14 ára. aðsend Katrín Amni Friðriksdóttir henti lífi sínu upp í loft í lok sumars þegar hún sagði skilið við íslenska streituvalda og flutti með dætur sínar tvær til Ítalíu.
Katrín segir flutningana suður um haf hafa átt sér langan aðdraganda. Endanleg ákvörðun var tekin þegar mæðgurnar fundu draumabæinn. „Lucca er hundrað þúsund manna bær í Toscana héraði en við höfðum skoðað nokkra aðra staði. Flórens hefði verið áræðanlegasti kosturinn vinnulega séð en við fundum okkur ekki þar,“ segir Katrín í samtali við blaðakonu. Á meðan viðtalinu stendur lýsir Katrín útsýninu sem blasir við henni í gegnum eldhúsgluggann þar sem grænt gras og sólskin skarta sínu fegursta. Hinum megin á línunni er haustlægðin í hámarki og auðvelt að skilja ákvarðanatökuna. Systurnar blómstra í bænum Lucca.aðsend „Þegar við komum í þennan bæ var ekki aftur snúið. Þetta var rétti staðurinn. Næsta skref var að finna húsnæði og skrá stelpurnar í skóla. Heimurinn er mitt heimilisfang Barnsfaðir minn stóð þétt við bakið á okkur og að mínu mati eru dætur okkar svo miklir yfirburða einstaklingar að ég treysti þeim vel í þetta verkefni. Ég hef oft áður steypt þeim í allskonar krefjandi verkefni. Ég sé til þess að þær séu alltaf öruggar og mér það mikið í mun að þær séu aldrei hræddar við stóra heiminn. Katrín segir mikilvægt að sýna stelpunum sínum stóra heiminn.aðsend Eflaust er það partur af því að vera sjálf hálf líbönsk en mér finnst heimurinn vera mitt heimilisfang. Við mæðgur ákváðum þennan flutning út í sameiningu og ræddum það í þaula hvað við myndum segja við hvor aðra ef einhverjar tilfinningar kæmu upp. Íslensk börn eru alin upp í svo miklum bómul og mér fannst í raun synd að dætur mínar myndu eyða ungdómsárum sínum á Klambratúni þegar þær gætu verið að upplifa allan heiminn. Það er ekkert betra en að stækka huga og heim barnanna sinna.“ Tækifæri til að kynnast sér upp á nýtt Spurð hvernig hafi gengið að koma sér fyrir á nýjum og framandi stað segist Katrín hafa alltaf verið með plan. Katrín ásamt yngri dóttur sinni, Antoníu.aðsend „Ég hef flakkað um heiminn frá því ég var ung og búið til skamms tíma á nokkrum stöðum. Þetta nýja ævintýri er bara raunhæft framhald af ævintýramennskunni í mér. Ég hef í raun verið að undirbúa dætur mínar í skrefum í nokkur ár. Ferðast mikið með þær, skráð á tungumálanámskeið og í sumarnámskeið erlendis. Vissulega var þetta ekki auðvelt en alls ekki óyfirstíganlegt. Verkefnin verða alltaf flóknari þegar það eru börn í spilinu. Mæðgurnar ferðuðst víða um Ítalíu áður en rútínulífið hófst. aðsend Ég vildi að þetta yrði mjúk lending fyrir þær svo við byrjuðum á góðu fríi þar sem við ferðuðumst um strendur Ítalíu áður en dagskráin hófst. Eftir það tók við að búa til nýja rútínu. Ég er nefnilega lúmskur þjóðverji í mér, verð að hafa allt samkvæmt plani. Þess á milli að mæti ég í jóga tíma og treysti á ferlið. Það að taka sjálfsstýringuna úr gír og búa til nýjar venjur getur samt alveg tekið á. En það getur líka verið gaman að leita að nýja rétta smjörinu í búðinni. Það getur tekið nokkur skipti en það lætur mér líða lifandi. Þannig fær maður tækifæri til að kynnast sér upp á nýtt.“ Mikill kostur að vera á meginlandinu Katrín er framkvæmdastjóri og annar eigandi fyrirtækisins Kavita ehf, sem á meðal annars vörumerkin ICEHERBS og Protis, -íslensk fæðubótaefni framleidd hér á landi. Fyrirtækið flytur einnig inn vörumerkin Good Routine og Dr. Hauschka. Hún segir við flutningana hafi hún hýft fyrirtækið upp á næsta stig. Katrín segir mikinn kost að dvelja á meginlandinu vinnu sinnar vegna. aðsend „Við erum mjög ört vaxandi og erum við í miklum alþjóðlegum viðskiptum, þannig að vera á meginlandinu er mikill kostur fyrir mig. Hér næ ég að sinna dýpri vinnu en heima á Íslandi. Fyrirtækið er tíu manna teymi og maður er alltaf með milljón bolta á lofti. Þá er hætta á að fókusa ekki á verkefnin sem eru mikilvæg til að vaxa. Verandi hér úti er ég ekkert að pæla hvort það sé nóg af mjólk í kaffið í ísskápnum á vinnustaðnum heldur næ að sinna stóru sýninni. Heima er svo sérvalin manneskja í hverri stöðu. Margoft verið nálægt því að keyra sig í þrot Veðurfarið og smæðin á Íslandi hentar mér hins vegar illa og hraðinn er svakalegur. Þrátt fyrir að vera meðvitaður er óhjákvæmilegt að taka ekki þátt í honum. Ég næ ekki að finna ró til langs tíma heima og hef margoft verið nálægt því að keyra mig í þrot. Mægðurnar hafa aðlagast ítalska lífstílnum vel.aðsend Að vera dugleg og ör manneskja og búa á sama tíma á Íslandi er ekki hollt fyrir mig. Ég er líka oft svo mikil ekkert mál týpa og fer á fulla ferð að leysa öll mál en stundum þarf maður ekki að leysa allt einn. Sem betur fer hef ég verið í jóga í tuttugu ár og ég veit að ég þarf á því að halda í þessu brjálaða lífi. Eins tek ég alltaf göngutúr á morgnana áður en vinnan tekur við. Katrín segir mikilvægt að halda í streitulausan lífstíl og nýtur lífsins með stelpunum sínum í sólinni. Á Íslandi er stutt í allt og auðvitað vill maður sinna vinum sínum en hér er ég markvisst að forðast fólk því ég vil vanda það vel hvar ég eyði orkunni minni. Maður þarf ekki að mæta allstaðar og ég hef öðlast öryggi í því sem er geðveikt frelsandi. Sólin hér gefur mér sömuleiðis svo mikið. Það að vakna við fuglasöng og sólargeisla er tilfinning sem ég get ekki lýst en mæli heilshugar með.“
Tímamót Ferðalög Börn og uppeldi Íslendingar erlendis Mest lesið Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka Lífið Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Lífið Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Lífið Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Lífið Forstjórinn sem fór á atvinnuleysisbætur Áskorun Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Lífið Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Lífið Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Lífið Ofurnæmni Önnu Birtu: Hefur heyrt hugsanir fólks í Kringlunni Lífið Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Lífið Fleiri fréttir Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dagbókum hans Verður alltaf meyr þegar hann hugsar um lífsbjörgina „Við löbbum ekki bara og hrösum um Esjuna“ Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sungið, saumað og sprellað á öskudaginn Sagði já og baðst í leiðinni afsökunar „Ég skal rétta þjófinum 60.000 kall og óska honum góðs dags“ Tannlæknir sem tannkrem á öskudaginn Keyptu 250 fermetra hús í Andalúsíu á fjörutíu milljónir Sjá meira