Þyri Huld starfar sem dansari og grænkeri en hún sagði nýverið upp störfum hjá Íslenska dansflokknum og segir nýja tíma í þann mund að hefjast.
„Ég var að komast inn í Pilates kennara nám í Hollandi en það er eini staðurinn í Evrópu þar sem hægt er að fá Romana authentic Pilates kennara réttindi. Þessa dagana er ég að kenna mikið og er með spírunámskeið ásamt Hildi Ómars vinkonu minni. Þar erum við að kenna fólk að spíra fræ og fræðast um lifandi fæði.

Ég er líka virk á Instagram þar sem ég er að deila lifandi lífstíl uppskriftum og fróðleik.“
Spurð hvernig hún lýsi eiginmanninum, Hrafnkeli segir Þyri hann vera besta manni í heimi:
„Hann starfar sem hagfræðingur en er sömuleiðis mikill hlaupagarpur og frábær faðir. Hann gerir líka besta hummus í heimi sem er mikill kostur.“

Hvernig kynntust þið?
„Það var í gegnum sameiginlega vini. Þau voru að gifta sig sumarið sem við vorum að kynnast. Það er ekkert rómantískara en að hittast í brúðkaupi. Eftir brúðkaupið fórum við á stefnumót og löbbuðum upp Esjuna. Ég mæli með að fara í fjallgöngu á stefnumóti það er bæði skemmtilegt og fallegt að vera saman úti í náttúrinni og eiga gott spjall og á sama tíma gera góða æfingu.“

Þyri Huld er nýjasti viðmælandinn í viðtalsliðnum Ást er.
Fyrsti kossinn: „Við kysstumst fyrst Kaffibarnum eins og margir fyrstu kossar. Það var eftir útskriftina mína úr Listaháskólanum árið 2011.“
Uppáhalds rómantíska kvikmyndin mín er: „Romeo+Juliet. Hún er svo svo rómantísk og listræn mynd.“

Uppáhalds break up ballaðan mín er: „Baby með Donnie &Emerson.“
Lagið okkar: „Ilaló, lag sem var verið að spila út um allt í Bólivíu þegar við vorum að ferðast þar árið 2014. Fólk var úti á götu allan daginn að dansa og æfa samhæfða dansa. Við ferðuðumst um Suður Ameríku í nokkra mánuði með bakpoka á bakinu. Æðislegur tími sem mótaði sambandið okkar. Lentum í allskonar skemmtilegum ævintýrum sem við rifjum oft upp og hlægjum að minningunum.“

ÞyriMér finnst rómantískt stefnumót vera: „Að mínu mati er það að vera saman í útlöndum og ramba inn á veitingastað. Ganga um borgina. Setjast niður horfa á mannlífið og spjalla saman og hlægja.
Mér finnst hversdagslegir hlutir líka mjög rómantískir eins og að fara út á róló með strákana okkar.
Efst á listanum væri samt að fá pössun og fara tvö saman í sund og gufu.“
Maturinn: „Kóngasalat ein og við köllum það. Risastórt salat með fullt af spírum, avokató, túrmerik blómkáli og sætum kartöflum úr ofninum toppað með kókos og tahini sósu.“

Fyrsta gjöfin sem ég gaf kærastanum mínum: „Bolur sem ég straujaði á fíla, Við vorum með eitthvað grín í gangi og ég tók það bara alla leið. Fór í litur og föndur og fann út hvernig ég gæti sett þessa mynd á bolinn. Straujaði síðan myndina á bol sem ég keypti í Rúmfatalagernum.“
Fyrsta gjöfin sem kærastinn minn gaf mér: „Hann gaf mér ofsalega fallegt hálsmen.

Kærastinn minn er: „Sætur, skemmtilegur og stór, allt sem byrja á S.“
Rómantískasti staður á landinu: „Upp í sveit undir berum himni með norðurljósum og stjörnum.“
Ást er: „Traust og hlátur.“