Skoðun

Skoðum brjóstin allt árið

Ólöf Kristjana Bjarnadóttir og Helga Tryggvadóttir skrifa

Bleiki mánuðurinn október rennur senn sitt skeið en hann er okkur vitundarvakning um brjóstakrabbamein, algengasta krabbamein sem konur fá. Bara hér á Íslandi greinast ár hvert um það bil 260 konur með sjúkdóminn og tilfellum fjölgar ár frá ári.

Horfur flestra kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein eru sem betur fer góðar enda eru hér á landi nær 4000 konur á lífi í dag sem greinst hafa með sjúkdóminn. Flestar konur sem greinast með brjóstakrabbamein eru við greiningu með staðbundið mein í brjósti og stundum einnig eitlum í holhönd og stendur þá til boða skurðaðgerð í læknandi tilgangi þar sem mein er fjarlægt. Háð umfangi sjúkdóms og öðrum eiginleikum krabbameinsins er langflestum konum ráðlagt að gangast undir viðbótarmeðferð sem dregur úr líkum á því að brjóstakrabbameinið komi til baka.

Viðbótarmeðferð getur meðal annars falið í sér geislameðferð, krabbameinslyfjameðferð og andhormónameðferð. Rannsóknir hafa sýnt að slík meðferð dregur verulega úr fjölda þeirra kvenna sem greinast aftur með sjúkdóminn en við endurgreiningu hefur krabbameinið því miður oft náð að dreifa sér um líkamann og við lítum enn þann dag í dag á sem langvinnan sjúkdóm sem ekki er hægt að lækna. Viðbótarmeðferðin gegnir því gríðarlega mikilvægu hlutverki til þess að auka lífslíkur kvenna eftir að þær hafa greinst með brjóstakrabbamein.

Þökk sé framförum í krabbameinsmeðferð lifa konur með langvinnt brjóstakrabbamein nú lengur en áður. Þrátt fyrir fleiri og bætta meðferðarmöguleika sem skila betri horfum gildir enn að því fyrr sem brjóstakrabbamein greinist því betra. Því umfangsminna sem meinið er við greiningu og því hagstæðari eiginleika meinið sýnir, því umfangsminni er viðbótarmeðferðin að jafnaði og eru þá jafnframt aukaverkanir oftast minni.

Brjóstaskimun hjá einkennalausum konum er mikilvæg leið til að greina brjóstakrabbameinin áður en meinin valda einkennum. Á Íslandi eru allar konur á aldrinum fjörutíu ára til sjötíu og fjögurra ára reglulega boðaðar í skimun. Undanfarin ár hefur þátttakan í brjóstaskimun á Íslandi verið lág og síðastliðin tvö ár rétt yfir 50% sem er mun lægra en á hinum Norðurlöndunum. Rannsóknir hafa sýnt að brjóstaskimun bjargar mannslífum og horfur einstaklinga sem greinast með brjóstakrabbamein í gegnum skimun eru betri en þeirra sem greinast vegna einkenna. Það er því mikilvægt að auka þátttöku í brjóstaskimun til að greina meinin fyrr.

Þrátt fyrir að október sé að líða undir lok heldur baráttan gegn brjóstakrabbameini áfram og mikilvægt að konur séu áfram vakandi fyrir einkennum þess. Ef konur finna fyrirferð í brjósti er mikilvægt að leita læknisaðstoðar þar sem þörf er á ítarlegri rannsóknum. Við viljum því hvetja allar konur til þess skoða reglulega brjóstin sín og skreppa í skimun þegar boðun berst, alla mánuði ársins.

Höfundar eru krabbameinslæknar á Landspítalanum.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×