Ása Bríet leggur áherslu á vistvæna hönnun í sinni listsköpun.
„Með mastersnáminu hér í Institut Français de La Mode vil ég öðlast betri þekkingu á handverkinu. Einnig sé ég fyrir mér að prjónafatnaður verða ein sjálfbærasta leiðin til að búa til föt í framtíðinni.“
Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?
Hvernig við notum föt sem tjáningu. Það sem mér finnst mest spennandi núna innan tísku er þróun á efnum/textílnum sem við notum í gerð fatnaðar, sérstaklega með sjálfbærni í huga.
Einnig hvernig loftslagsbreytingar heimsins munu breyta því hvernig við klæðum okkur, því að í grunnin þá klæðum við okkur til að halda á okkur hita.

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?
Alexander McQueen ullarjakki úr 90's línu. Ég var í starfsnámi í París 2019 en þurfti að skreppa til London í einn dag í stórt verkefni sem að var aflýst á síðustu stundu þegar ég var komin til London. Ég var frekar svekkt en labbaði framhjá second hand búð í Camden. Þessi jakki hékk aftast í búðinni og starði á mig þegar ég labbaði inn.

Ég labbaði strax að jakkanum, mátaði hann og það var eins og hann hafi verið sérsaumaður á mig. Ég elska hann, herðapúðarnir og fittið í mittið er topp! Þessi fýluferð til London varð bara alveg þess virði og svo er líka svo gaman að eiga jakka frá uppáhalds hönnuðinum mínum.
Svo er það Chanel perluhálsmen sem ég fékk í jólagjöf frá Chanel þegar ég var í starfsnámi þar. Það hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir mig og er svo verðmæt minning.

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?
Þegar ég vel outfit fyrir daginn þá ákveð ég oftast fyrst í hvaða skóm og jakka ég vil vera í og svo kemur heildar lookið. Alltaf mikilvægt að vera í góðum skóm og í jakka!
Flestar helgar hér í París fer ég í rannsóknarferðir í vintage búðir og á nytjamarkaði. Ég get alveg eitt miklum tíma í það að skoða og pæla og verða fyrir innblástri fyrir snið og efni. Markmiðið er ekki alltaf að kaupa mér eitthvað en það er alltaf mjög skemmtilegt þegar maður dettur inn á einhverja einstaka flík sem að enginn á eins.

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?
Smá hávær án hávaða. Ég er með gott auga fyrir smáatriðum. Ég klæðist oftast svörtu og ég fókusa oftast á einn part á líkamanum með áferðum eða einum lit. Smá sexí á óvæntan hátt, það er alltaf skemmtilegt áferðarpartý hjá mér.

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?
Já mjög, ég hef farið í gegnum mörg tímabil. Þegar ég var yngri var ég mjög mikið að prófa mig áfram með mismunandi stíla, en núna í dag veit ég meira hver ég er og hvað ég vil og því er fataskápurinn minn mun meira útpældur. Ég sé að flíkurnar sem ég kaupi mér eru oftast með sama vibe og passa saman.

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?
Alls staðar að, frá fólki í kring um mig eða sem ég sé úti á götu, mörkuðum, tónlist, list og mismunandi tímabilum.

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?
Eftir að hafa verið í Central Saint Martins í London í fjögur ár, þar sem að flestir eru mjög frjálslega klæddir og gangarnir í skólanum eru eins og tískusýning á hverjum degi, þá hef ég séð að allt virkar og allt má ef að maður ber sig vel með sjálfsöryggi.

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?
Líklegast fermingardressið. Ég var í prjónaðri Færeyskri þjóðbúningspeysu og svo fékk ég frænku mína til að sauma á mig silki pils sem var inspirerað af pilsi sem ég sá Michelle Obama klæðast í Vogue.
Enn þann daginn í dag nota ég bæði pilsið og peysuna saman og í sitthvoru lagi. Fermingarfötin mín eru líklegast föt sem ég mun eiga og nota út allt lífið, sem lengi sem ég passa í þau.

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?
Hugsa vel um flíkurnar sínar! Ekki henda öllu í þvottavélina og þurrkarann, hengja þau á gott herðatré og brjóta vel saman. Einnig er mjög mikilvægt að pæla í því hvaða efni er í flíkunum okkar og eiginleikar þess. Náttúruleg efni hafa betri eiginleika og endast betur ef það er hugsað rétt um þau.
Mér finnst líka mjög áhugavert að pæla í því að ef að það væru enginn „trend“ til myndum við þá kaupa færri flíkur og nota flíkurnar okkar í lengri tíma? Ég held að það gæti verið góð pæling sem allir geta tekið til sín þegar fólk er að fara kaupa sér flíkur til að fylgja einhverjum tískustraumum. Er það þess virði?

Svo er það að breyta hárinu sínu! Það getur haft svo mikil áhrif á það hvernig við erum. Ég hef verið mjög óhrædd við að breyta hárinu mínu í gegnum tíðina.
Ég hef verið með sítt hár, krullur, slétt, rakað í hliðunum, litað hárið og svo snoðaði ég mig einu sinni. Núna í haust ákvað ég að klippa hárið mitt alveg stutt aftur og mér líður eins og ég hafi re-inventað mig! Plús að mér líður eins og allur fataskápurinn minn hafi orðið nýr, öll fötin mín líta öðruvísi út með stutta hárið og ég ber mig öðruvísi.
Þannig já, vera óhrædd/ur/tt að klippa og breyta hárinu sínu, það vex alltaf aftur!
Hér má fylgjast með Ásu Bríeti á samfélagsmiðlinum Instagram.