KR varð Íslandsmeistari með yfirburðum sumarið 2019 en liðið endaði mótið með fjórtán stigum meira en næsta lið sem var Breiðablik.
Á síðustu árum hefur hver leikmaður þessa liðs á fætur öðrum yfirgefið Vesturbæjarliðið. Þjálfarinn Rúnar Kristinsson hætti síðan þjálfun liðsins eftir að Bestu deildinni lauk í haust og tók við liði Fram.
Margir hafa hætt í fótbolta
Margir úr meistaraliði KR frá 2019 hafa líka sagt skilið við fótboltann. Skúli Jón Friðgeirsson setti skóna upp á hillu strax eftir Íslandsmeistaratímabilið, Gunnar Þór Gunnarsson hætti eftir 2020 tímabilið, Pálmi Rafn Pálmason og Arnþór Ingi Kristinsson sögðu þetta gott eftir 2021 tímabilið og Beitir Ólafsson markvörður hætti í fótbolta eftir 2022 tímabilið.

Pablo Punyed fór yfir til Víkinga fyrir 2021 tímabilið og hefur síðan unnið fimm stóra titla á sex árum með Víkingum.
Óskar Örn Hauksson gekk til liðs við Stjörnuna eftir 2021 leiktíðina að hafa hafa spilað með KR í fimmtán ár og bætt bæði leikja- og markametið. Óskar Örn var markahæstur í 2019 liðinu með sjö deildarmörk en Daninn Tobias Thomsen skoraði einnig sjö mörk. Thomsen fór heim til Danmerkur í ágúst 2020.
Bæði Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Finnur Orri Margeirsson fóru heim í Breiðablik, Finnur eftir 2020 tímabilið en Arnór fyrir tímabilið í ár.
Björgvin Stefánsson, sem skoraði fjögur mörk fyrir KR þetta sumar, en hann hætti hjá félaginu vegna veikinda eftir að hafa greinst með gigt í byrjun mars 2020. Alex Freyr Hilmarsson fór til ÍBV sumarið 2022 og Ástbjörn Þórðarson fór fyrst á láni til Gróttu og seinna til Keflavíkur. Aron Bjarki Jósepsson fór upp á Skaga fyrir 2022 tímabilið.
Af þeim sem spiluðu mest sumarið 2019 eru aðeins fjórir leikmenn eftir í KR en það eru Atli Sigurjónsson, Finnur Tómas Tómasson, Ægir Jarl Jónasson og Kristján Flóki Finnbogason.
Fjórir með nýlega samninga
Finnur Tómas fór út í atvinnumennsku en hefur síðan snúið aftur heim. Kristján Flóki spilaði reyndar mun minna en hinir því hann kom til KR í lok júlí á meistaraárinu. KR var komið með tíu stiga forskot þegar Kristján Flóki spilaði sinn fyrsta leik 6. ágúst.
Finnur Tómas Tómasson gerði nýjan fjögurra ára samning við KR í janúar 2022, Atli framlengdi samning sinn um þrjú ár í upphafi 2022 tímabilsins og Kristján Flóki samdi einnig til þriggja ára í janúar í fyrra. Ægir Jarl er síðan með samning út 2024 tímabili. Þessir fjórir eru því ekki á förum úr Vesturbænum.
Það er því miklar líkur á því að þessir fjórir haldi áfram að spila með KR-liðinu undir nýjum þjálfara. Minningin um Íslandsmeistaratitilinn lifir því enn innan liðsins.
- Þeir spiluðu flestar mínútur í KR-liðinu 2019:
- 1. Beitir Ólafsson 1980 mínútur - HÆTTUR
- 2. Óskar Örn Hauksson 1932 mínútur - FARINN
- 3. Arnór Sveinn Adalsteinsson 1890 mínútur - FARINN
- 4. Pálmi Rafn Pálmason 1856 mínútur - HÆTTUR
- 5. Tobias Thomsen 1793 mínútur - FARINN
- 6. Kristinn Jónsson 1611 mínútur - FARINN
- 7. Kennie Chopart 1520 mínútur - FARINN
- 8. Finnur Tómas Pálmason 1503 mínútur
- 9. Pablo Punyed 1419 mínútur - FARINN
- 10. Atli Sigurjónsson 1070 mínútur
- 11. Arnþór Ingi Kristinsson 962 mínútur - HÆTTUR
- 12. Skúli Jón Friðgeirsson 778 mínútur - HÆTTUR
- 13. Finnur Orri Margeirsson 773 mínútur - FARINN
- 14. Kristján Flóki Finnbogason 715 mínútur
- 15. Gunnar Þór Gunnarsson 532 mínútur - HÆTTUR
- 16. Björgvin Stefánsson 453 mínútur - HÆTTUR
- 17. Alex Freyr Hilmarsson 404 mínútur - FARINN
- 18. Ægir Jarl Jónasson 384 mínútur