Körfubolti

Komu lykilleikmanni fljótt til varnar

Andri Broddason skrifar
Cooper Flagg var sárþjáður þegar gann gekk til búningsherbergja.
Cooper Flagg var sárþjáður þegar gann gekk til búningsherbergja. Justin Casterline/Getty Images

Mikill hiti var í NBA-deildinni í nótt þegar Indiana Pacers tóku á móti Dallas Mavericks. Þar voru leikmenn Mavericks ósáttir við harkalegt brot á Cooper Flagg.

Eftir að hafa unnið boltann var Cooper Flagg að keyra að körfunni og átti eftir auðvelt sniðskot til þess að fá auðveld tvö stig. Aaron Nesmith ætlaði ekki að taka það í mál og keyrði til baka og ætlaði að stöðva skotið.

Nesmith endaði á að slá í höndina á Flagg þegar hann var kominn upp að körfunni og lá hann sárþjáður eftir áreksturinn og hélt um öxlina. Liðsfélagar Flagg í Mavericks komu sumir honum til aðstoðar en aðrir voru ósáttir við Nesmith og urðu mikil læti inni á vellinum.

Allt sauð upp úr og þurfti að draga suma leikmenn frá hvor öðrum svo þeir myndu hætta að ýta hvor öðrum. Flagg fór af velli og gat ekki spilað meira í leiknum og voru því Mavericks án hans í seinni hálfleik.

Þrátt fyrir að hafa aðeins spilað í fyrri hálfleik var Flagg einn besti maður vallarins og gríðarlegt högg fyrir liðið að missa af honum. Ekki er víst hvað hann verður frá lengi en það er ekki gott að spila körfubolta á meðan maður er meiddur í öxlinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×