Órafmögnuð og notaleg stund með Bylgjunni Bylgjan 15. nóvember 2023 12:24 Tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hófst á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í nóvember. Vala Eiríks hefur leitt verkefnið frá upphafi en hún spjallar m.a. við tónlistarfólkið á milli laga. Mynd/Hulda Margrét Tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hófst á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í upphafi mánaðarins. Stórsöngkonan Jóhanna Guðrún reið á vaðið og viku síður koma Klara Elías fram en allir tónleikar fara fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Næstu fimmtudagskvöld mun rjóminn af íslensku tónlistarfólki koma þar fram en tónleikaröðin endar á jólatónleikum 16. desember þar sem tónlistarfólkið syngur uppáhalds jólalag sitt. „Þetta er þriðja árið sem við höldum þessa tónleikaröð og ég hef fengið að leiða þetta verkefni frá upphafi,“ segir Vala Eiríks, útvarpskona á Bylgjunni, sem spjallar meðal annars við tónlistarfólkið á milli laga. „Stemningin er alltaf á notalegu nótunum hjá okkur á sviðinu og tónleikagestir finna svo sannarlega fyrir því. Við höfum stækkað tónleikaröðina og betrumbætt með hverju árinu og höldum líklega áfram að þróa hana eftir tilfinningunni næstu árin. Viðtökurnar hafa verið vonum framar og það er gaman að sjá að fólk vilji persónulega samveru með tónlistafólkinu okkar.“ Friðrik Dór verður á dagskrá á morgun, fimmtudaginn 16. nóvember. Mynd/Hulda Margrét Við val á tónlistarfólki er reynt að hafa fjölbreytnina í fyrirrúmi að sögn Völu. „Sjálf hef ég skotið að nöfnum sem ég væri til í að sjá lyft upp, enda er tónleikaröðin frábær vettvangur fyrir nýja listamenn til að kynna sig fyrir þjóðinni.“ Á morgun fimmtudag verða tónleikar með Friðriki Dór og næst stíga á svið, í þessari röð, þau Una Torfa, Ragga Gísla og Jónas Sig. Lokaþátturinn 16. desember er svo sérstakur jólaþáttur eins og fyrr segir. Búið er að taka alla tónleikana upp og var stemmingin alveg stórkostleg að sögn viðstaddra. Ragga Gísla sýnir frábæra takta 30. nóvember. Mynd/Hulda Margrét Vala segir það fyrst og fremst vera listamennina sjálfa sem gera þessa tónleikaröð svona skemmtilega. „Í spjalli mínu við þau milli laga reyni ég að fara aðeins undir yfirborðið, eða eins langt og ég finn að þau eru tilbúin að hleypa mér. Það er svo mikilvægt að mínu mati því fólk vill fá tilfinningu fyrir manneskjunni sem stendur á bak við lögin sem landsmönnum þykir svo vænt um. Bæjarbíó er líka einstaklega hlýr og skemmtilegur tónleikastaður. Þótt hann rúmi ágætis slatta af fólki, þá nær maður að halda í nándina við salinn.“ Jónas Sig er á dagskrá 7. desember. Mynd/Hulda Margrét Hún segir ómögulegt að gera upp á milli einstakra tónleika í tónleikaröðinni. „Það var eitthvað einstakt sem fylgdi hverjum listamanni fyrir sig. Mér fannst þó sérstaklega gaman að kynnast Unu Torfa, því hún var sú eina sem ég hafði ekki hitt áður. En öll voru þau æðisleg!“ Lokatónleikarnir 16. desember verða með öðru sniði enda jólatónleikar. „Við tókum upp jólalag og smá jólaspjall við hvern listamann í lok tónleika þeirra. Salurinn stóð sig stórvel í að halda jólagleðinni uppi og ekki að finna að það hafi stungið neinn að njóta jólanna saman í október.“ Næstu tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð: · 16. nóvember: Friðrik Dór · 23. nóvember: Una Torfa · 30. nóvember: Ragga Gísla · 7. desember: Jónas Sig · 16. desember: Jólaþáttur með öllum söngvurunum Allir tónleikar í tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hefjast á kl. 20 á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Hér er hægt að skoða eldri upptökur frá Bylgjan órafmögnuð. Bylgjan Bylgjan órafmögnuð Tónlist Mest lesið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið „Það spurði þig enginn“ Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Kátir tískukarlar hjá Kölska Tíska og hönnun Maður þurfti ekki að vera skyggn Gagnrýni Fleiri fréttir MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Einstök saga sem á erindi við okkur öll Það kom sér vel fyrir Erlu að eiga til pakka af Active Liver! Nýr EM hópur í glæsilegum keppnisbúningi frá Castelli Cycling Líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga Ótrúlega öflug meðferð Vinkonukvöldin hjá Elira Beauty farin af stað Krefjandi golfvöllur í óvenjulegri náttúrufegurð Flogið beint til Brno í fyrsta skipti frá Íslandi 15 íslenskar þáttaraðir á Stöð 2 í haust Allt fyrir hlaupið á einum stað Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Golfvöllur staðsettur í mikilli náttúruparadís Sólríkar borgarferðir og ljúfar aðventuferðir með Úrval Útsýn Tekur Nutrilenk samhliða Femarelle og mælir hiklaust með Svefninn skiptir máli! Opnuðu kaffihús fyrir hunda og ketti – Einn Puppaccino takk! Skemmtilegur golfvöllur í einstaklega fallegu umhverfi Sjá meira
Næstu fimmtudagskvöld mun rjóminn af íslensku tónlistarfólki koma þar fram en tónleikaröðin endar á jólatónleikum 16. desember þar sem tónlistarfólkið syngur uppáhalds jólalag sitt. „Þetta er þriðja árið sem við höldum þessa tónleikaröð og ég hef fengið að leiða þetta verkefni frá upphafi,“ segir Vala Eiríks, útvarpskona á Bylgjunni, sem spjallar meðal annars við tónlistarfólkið á milli laga. „Stemningin er alltaf á notalegu nótunum hjá okkur á sviðinu og tónleikagestir finna svo sannarlega fyrir því. Við höfum stækkað tónleikaröðina og betrumbætt með hverju árinu og höldum líklega áfram að þróa hana eftir tilfinningunni næstu árin. Viðtökurnar hafa verið vonum framar og það er gaman að sjá að fólk vilji persónulega samveru með tónlistafólkinu okkar.“ Friðrik Dór verður á dagskrá á morgun, fimmtudaginn 16. nóvember. Mynd/Hulda Margrét Við val á tónlistarfólki er reynt að hafa fjölbreytnina í fyrirrúmi að sögn Völu. „Sjálf hef ég skotið að nöfnum sem ég væri til í að sjá lyft upp, enda er tónleikaröðin frábær vettvangur fyrir nýja listamenn til að kynna sig fyrir þjóðinni.“ Á morgun fimmtudag verða tónleikar með Friðriki Dór og næst stíga á svið, í þessari röð, þau Una Torfa, Ragga Gísla og Jónas Sig. Lokaþátturinn 16. desember er svo sérstakur jólaþáttur eins og fyrr segir. Búið er að taka alla tónleikana upp og var stemmingin alveg stórkostleg að sögn viðstaddra. Ragga Gísla sýnir frábæra takta 30. nóvember. Mynd/Hulda Margrét Vala segir það fyrst og fremst vera listamennina sjálfa sem gera þessa tónleikaröð svona skemmtilega. „Í spjalli mínu við þau milli laga reyni ég að fara aðeins undir yfirborðið, eða eins langt og ég finn að þau eru tilbúin að hleypa mér. Það er svo mikilvægt að mínu mati því fólk vill fá tilfinningu fyrir manneskjunni sem stendur á bak við lögin sem landsmönnum þykir svo vænt um. Bæjarbíó er líka einstaklega hlýr og skemmtilegur tónleikastaður. Þótt hann rúmi ágætis slatta af fólki, þá nær maður að halda í nándina við salinn.“ Jónas Sig er á dagskrá 7. desember. Mynd/Hulda Margrét Hún segir ómögulegt að gera upp á milli einstakra tónleika í tónleikaröðinni. „Það var eitthvað einstakt sem fylgdi hverjum listamanni fyrir sig. Mér fannst þó sérstaklega gaman að kynnast Unu Torfa, því hún var sú eina sem ég hafði ekki hitt áður. En öll voru þau æðisleg!“ Lokatónleikarnir 16. desember verða með öðru sniði enda jólatónleikar. „Við tókum upp jólalag og smá jólaspjall við hvern listamann í lok tónleika þeirra. Salurinn stóð sig stórvel í að halda jólagleðinni uppi og ekki að finna að það hafi stungið neinn að njóta jólanna saman í október.“ Næstu tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð: · 16. nóvember: Friðrik Dór · 23. nóvember: Una Torfa · 30. nóvember: Ragga Gísla · 7. desember: Jónas Sig · 16. desember: Jólaþáttur með öllum söngvurunum Allir tónleikar í tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hefjast á kl. 20 á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Hér er hægt að skoða eldri upptökur frá Bylgjan órafmögnuð.
Næstu tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð: · 16. nóvember: Friðrik Dór · 23. nóvember: Una Torfa · 30. nóvember: Ragga Gísla · 7. desember: Jónas Sig · 16. desember: Jólaþáttur með öllum söngvurunum
Bylgjan Bylgjan órafmögnuð Tónlist Mest lesið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið „Það spurði þig enginn“ Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Kátir tískukarlar hjá Kölska Tíska og hönnun Maður þurfti ekki að vera skyggn Gagnrýni Fleiri fréttir MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Einstök saga sem á erindi við okkur öll Það kom sér vel fyrir Erlu að eiga til pakka af Active Liver! Nýr EM hópur í glæsilegum keppnisbúningi frá Castelli Cycling Líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga Ótrúlega öflug meðferð Vinkonukvöldin hjá Elira Beauty farin af stað Krefjandi golfvöllur í óvenjulegri náttúrufegurð Flogið beint til Brno í fyrsta skipti frá Íslandi 15 íslenskar þáttaraðir á Stöð 2 í haust Allt fyrir hlaupið á einum stað Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Golfvöllur staðsettur í mikilli náttúruparadís Sólríkar borgarferðir og ljúfar aðventuferðir með Úrval Útsýn Tekur Nutrilenk samhliða Femarelle og mælir hiklaust með Svefninn skiptir máli! Opnuðu kaffihús fyrir hunda og ketti – Einn Puppaccino takk! Skemmtilegur golfvöllur í einstaklega fallegu umhverfi Sjá meira