Má barnið þitt segja nei? Alfa Jóhannsdóttir skrifar 28. nóvember 2023 12:31 Verum öruggt athvarf Öll börn eiga rétt á að vera örugg gegn ofbeldi en það er ekki nóg fyrir okkur fullorðna fólkið að vita það, þau þurfa að vita það sjálf. Við þurfum að segja þeim það oft og ítrekað. Við þurfum að hlusta og vera til staðar. Það að vera meðvituð um þetta getur hjálpað okkur að fyrirbyggja að kynferðislegt ofbeldi eigi sér stað. Að ræða ofbeldi við fjölskyldumeðlimi og önnur getur einnig haft fælingarmátt á mögulega gerendur og getur verið góð forvörn. Gott er að ræða við börnin okkar um hvað er í lagi og hvað ekki. Notum tækifærið yfir hátíðarnar og venjum okkur af því að neyða börn til að knúsa og kyssa fólk, kennum þeim frekar að þau hafi fullan rétt á að segja nei og veifa bless, ef þau vilja það frekar. Aldur barnsins skiptir engu máli, fimm ára barn á fullan rétt á að segja nei rétt eins og sextán ára. Æfum okkur að spyrja hvort við megum fá knús eða koss bless, og virðum svarið. Munum að börn reyna oft að segja frá ofbeldi mörgum sinnum áður en það tekst, svo við þurfum að hlusta, vera vakandi og leggja okkur fram við að vera raunverulegur stuðningur í lífi barnsins. Sum börn eiga engan mikilvægan að sem hlúir að þeim, gætir þeirra og hlustar. Tökum það að okkur og verum öruggt athvarf, þangað sem þau geta leitað ef þau upplifa ótta eða vanlíðan. Ef barn segir okkur að á því hafi verið brotið, þá hlustum við og hrósum þeim fyrir hugrekkið. Við gætum okkur að því að spyrja ekki leiðandi spurninga og segjum þeim að við ætlum að hjálpa þeim. Við þurfum að geta rætt við barnið án þess að barnið finni til skammar eða eftirsjár yfir því að segja okkur frá og án þess að skemma fyrir rannsóknarhagsmunum máls síðar meir. Við þurfum að vera meðvituð um það að barn sem segir frá ofbeldi getur verið að upplifa mjög flóknar tilfinningar og jafnvel elskað geranda sinn mjög mikið og ekki viljað koma honum í vandræði. En vill samt að ofbeldið hætti. Ykkar viðbrögð og fullvissa um að þið munið grípa til aðgerða gæti gert það að verkum að barn upplifir von og öryggi í fyrsta sinn í langan tíma. Ekki vera hrædd um að gera mistök, það sem skiptir mestu máli er að hlusta og trúa orðunum þeirra. Við tökum ábyrgðina af herðum barnanna og verndum þau af öllum okkar mætti. Ef þið getið verið eitthvað yfir hátíðarnar; verið traustsins verð í aðstæðum sem þessum. Við þurfum að skapa umhverfi fyrir börn sem þar sem þau upplifa sig örugg. Netnámskeið um kynferðislegt ofbeldi og einkenni ofbeldis Það er mikilvægt að við öll þekkjum einkenni ofbeldis, og að við séum meðvituð um það hvernig við nálgumst það þegar það vaknar grunur um brot gegn barni eða ef barn segir okkur frá. Nú nýlega gaf Barna- og fjölskyldustofa út netnámskeið sem er opið öllum, og ætlast er til þess að öll sem starfa með börnum og ungmennum taki. Í þessum námskeiðum er farið yfir möguleg einkenni kynferðisofbeldis, tilkynningaskylduna, þau viðbrögð sem eru mikilvæg verði starfsfólk þess áskynja að barn sýni óeðlilega kynhegðun, ef barn ber einkenni þess að hafa orðið fyrir ofbeldi eða sýni merki um að vilja segja frá. Einnig hvað þykir eðlileg kynferðisleg hegðun barna á ákveðnum aldri, hvaða hegðun veldur áhyggjum og hvenær ráðlegt er að kalla eftir áliti sérfræðings. Netnámskeiðið er að finna inn á Fræðslutorgi Barna- og fjölskyldustofu. Við þurfum alltaf að leyfa börnunum að njóta vafans og tilkynna – tilkynnum einu sinni of oft frekar en einu sinni of sjaldan. Sjáðu bara augun mín bláÞau blikka og pírast og endalaust sjá.Á bakvið þau dreymir mig nóttunni áUm flugvélar, tröll og dýr stór og smá Sjáðu bara munninn sem ég áHann hreyfist upp og niður og stundum á skáÉg borða með honum mat og tala um alltÉg brosi og hlæ og segi margt snjallt Þetta eru fingurnir mínir, sterkir og stórirÞeir eru tíu, ekki þrír eða fjórirÞeir klappa og klóraBæði litla og stóra Þetta eru fæturnir mínir, litlir en samt svo sterkirÞeir geta hlaupið um og stappað eins og berserkirPassa í sokka og græn stígvélHlaupa í rigningu, snjó og haglél Sjáðu bara magann minn hringlóttaÍ honum finn ég hungur, gleði og stundum óttaEf maginn er svangur þá heyrist hljóðStundum fæ ég illt í hann ef ég í munninn tróð Þetta eru einkasvæðin mínÞau eru mín en ekki þínEinkasvæðin mín eru aldrei fyrir þigÞau eru algjörlega einka fyrir mig Þau eiga sín réttu nöfn sem við notum líkaTil dæmis rass, pungur, typpi og píkaÞannig ruglast enginn og allir vitaAð einkasvæðin mín eru mín, eins og ég hér rita Það má enginn snerta eða láta mig sýnaEinkastaðina mínaÞað má enginn horfa eða taka myndHvort sem þau eru feimin eða félagslynd Það er góð regla að biðja um leyfi og fá jáFyrir kossum og knúsi og að fá að sjáBrosið mitt bjarta og leikföngin mínEn það alltaf bannað að sýna mér einkasvæðin sín Þó þau segi að þetta sé leikur og ég svo fínÞó að einkasvæðin þeirra séu alveg eins og mínÞó þau gefi mér nammi eða gjöfJafnvel þau séu mjög áköf Ég má alltaf segja nei þegar ég vil ekkiJafnvel þó það sé einhver sem ég þekkiÞó það sé koss eða knúsEða ég kúri hjá mömmu eins og lítil mús Ég má segja nei við ókunnuga, fjölskyldu og viniVið frænkur, frændur, dætur og syniÉg má segja hvað mér finnstHvernig mér líður í hjartanu, alveg innst Það má enginn segja mér að geyma leyndarmálSem er vont í maga, hjarta eða sálEf einhver mig meiðir eða lætur líða illaEða hræðir mig eins og ljón eða górilla Þá segi ég einhverjum sem að ég treystiSem hjálpar mér, hlustar og hughreystirÉg veit að ég hef ekki gert neitt rangt eða ljóttNú hjálpar mér fullorðna fólkið fljótt Höfundur er forvarnafulltrúi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Tengdar fréttir Hvað myndirðu gera ef barnið þitt kæmi heim með sýnilega áverka? Sem betur fer reyna langflestir foreldrar allt sem þau geta til að vernda og verja börnin sín fyrir því sem veldur þeim skaða. Börnum af minni kynslóð var til dæmis kennt að varast ókunnuga á götum úti, fara aldrei upp í bíl með ókunnugum og svo auðvitað var stúlkum kennt að passa sig og setja sig ekki í aðstæður sem gætu leitt af sér ofbeldi. Það heppnaðist ekki alltaf, en það voru verkfærin sem foreldrar okkar höfðu. Óþokkar í myrkum húsasundum voru óöryggið og óttinn sem bar að varast. 26. janúar 2023 09:01 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Hvað myndirðu gera ef barnið þitt kæmi heim með sýnilega áverka? Sem betur fer reyna langflestir foreldrar allt sem þau geta til að vernda og verja börnin sín fyrir því sem veldur þeim skaða. Börnum af minni kynslóð var til dæmis kennt að varast ókunnuga á götum úti, fara aldrei upp í bíl með ókunnugum og svo auðvitað var stúlkum kennt að passa sig og setja sig ekki í aðstæður sem gætu leitt af sér ofbeldi. Það heppnaðist ekki alltaf, en það voru verkfærin sem foreldrar okkar höfðu. Óþokkar í myrkum húsasundum voru óöryggið og óttinn sem bar að varast. 26. janúar 2023 09:01
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar