Fimm erfið starfsmannamál litin alvarlegum augum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. desember 2023 15:11 Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm Fimm mál er varða kynferðislega eða kynbundna áreitni, einelti eða ofbeldi starfsfólks lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa verið til meðferðar hjá embættinu á árinu. Upplýsingafulltrúi lögreglu segir í öllum tilvikum hafa verið brugðist við í samræmi við reglugerð. Málin séu öll sem eitt litin alvarlegum augum. Veita á starfsfólki aukna fræðslu um mörk í samskiptum
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson upplýsingafulltrúi sendir. Eins og fréttastofa greindi frá í september var Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn hjá embættinu þriðji yfirmaðurinn í ár til að vera sendur í leyfi frá störfum. Margeir hefur verið stjórnandi miðlægrar rannsóknardeildar hjá embættinu og áberandi sem andlit lögreglu við rannsókn stórra glæpamála undanfarin ár. Samkvæmt heimildum fréttastofu var sálfræði- og ráðgjafarstofa fengin til þess að taka til skoðunar stjórnarhætti Margeirs. Ákvörðun hans að taka rannsakanda hjá embættinu, undirmann sinn, skyndilega úr fyrirhugaðri aðgerð hjá embættinu án faglegrar ástæðu var meðal þess sem tekið var til skoðunar. Í Kastljósi í gærkvöldi var fjallað um háttsettan karlmann í valdastöðu hjá lögreglunni sem hefði beitt lögreglukonu kynferðislegri og kynbundinni áreitni um margra mánaða skeið og sýnt ofbeldisfulla hegðun sem olli henni mikilli vanlíðan og ótta. RÚV nafngreinir ekki karlmanninn en samkvæmt heimildum fréttastofu er um Margeir að ræða. RÚV fullyrðir að tæplega þrír áratugir skilji Margeir og lörgeglukonuna að í aldri. Margeir starfar í dag á skrifstofu Höllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglukonan óskaði eftir flutning á aðra starfstöð og hefur samkvæmt heimildum RÚV ekki fengið neinn stuðning frá yfirstjórn lögreglu, hvorki lögreglustjóri né undirmenn lögreglustjóra. Stöðug samfélagsmiðlaskilaboð RÚV vísar í fyrrnefnda niðurstöðu sálfræðistofu þar sem fram kemur að tíu af tólf atvikum sem voru skoðuð falli undir skilgreiningu ofbeldis. Meðal þess sem lögreglumaðurinn gerðist sekur um var að þvinga konuna til að taka á móti sér á heimili hennar seint að kvöldi, senda henni stöðug skilaboð í gegnum samfélagsmiðla, stundum marga tugi á einni helgi, sitja fyrir henni í vinnunni og taka fram fyrir hendur næstu yfirmanna hennar er varða störf hennar, meðal annars með því að taka hana úr stóru verkefni þvert á hennar vilja. Sem fyrr segir hafa fleiri mannauðsmál komið upp hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á innan við ári. Hulda Elsa Björgvinsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og sviðsstjóri ákærusviðs, hætti störfum í apríl eftir að hafa farið í leyfi í desember í fyrra eftir úttekt sálfræðistofu á ákærusviðinu. Hulda Elsa hafði verið lykilmaður innan lögreglunnar um árabil. Hún starfaði hjá ríkissaksóknara um ellefu ára skeið og var sviðsstjóri ákærusviðs lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá því 2016. Þá var hún staðgengill lögreglustjóra frá árinu 2017 og hefur tvisvar verið settur lögreglustjóri. Þá greindi RÚV frá því í mars síðastliðnum að yfirlögregluþjónn hjá embættinu hefði verið sendur í leyfi vegna ásakana um kynferðislega áreitni á gleðskap lögreglufólks. Þeim yfirlögregluþjóni var samkvæmt heimildum fréttastofu einnig fundið nýtt hlutverk við skrifstofustörf hjá lögreglunni. Vilji skapa gott starfsumhverfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi síðdegis frá sér tilkynningu vegna fjölmiðlaumfjöllunar. Þar segir að hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sé lögð rík áhersla á að skapa starfsumhverfi og menningu þar sem starfsfólki líður vel og allir njóti sömu réttinda og friðhelgi. „Mál á borð við einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi (EKKO mál) auk mála sem varða ósæmilega háttsemi koma vissulega upp á vinnustaðnum en eru ekki umborin undir neinum kringumstæðum.“ Á síðastliðnu ári hafi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haft til meðferðar fimm mál er varði fyrrgreinda háttsemi. „Í öllum tilvikum var brugðist við í samræmi við reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Einnig var horft til laga um vinnuumhverfi og vinnuvernd og ákvæða starfsmannalaga. Í einhverjum tilfellum var talin ástæða til að kalla til utanaðkomandi sérfræðinga til að leggja mat á málin. Niðurstöður þeirra eru ávallt kynntar málsaðilum og er fylgt eftir með stuðningi stjórnenda í formi samtala og aðgengi að utanaðkomandi sérfræðistuðningi ef það á við.“ Það sé mannauðsstjóri embættisins, sem einnig situr í framkvæmdarstjórn embættisins, sem hafi forgöngu um vinnslu starfsmannamála og það sé síðan lögreglustjóri sem taki lokaákvörðun þegar skoðun máls sé að fullu lokið. „Niðurstaða slíkra mála getur leitt til beitingar agaviðurlaga á grundvelli starfsmannalaga, tilflutnings í starfi eða annarra úrræða. Vert er að taka fram að í starfsmannalögum telst áminning vera meðal þyngstu agaviðurlaga sem hægt er að beita opinberan starfsmann. Tvær áminningar fyrir samskonar brot leiða til uppsagnar.“ Þrátt fyrir að embættið geti ekki tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna þá sé fyrrgreind háttsemi ávallt litin alvarlegum augum og málsmeðferðin eftir því. Það sé enn fremur í samræmi við yfirlýsta stefnu LRH um virðingu í samskiptum og vinnuumhverfi sem sé laust við einelti, áreitni og ofbeldi af öllu tagi. „Undanfarið hefur átt sér stað endurskoðun á stefnu og verklagi innan embættisins og meðal niðurstaðna úr þeirri vinnu er að starfsfólk fái aukna fræðslu um mörk í samskiptum og hvaða afleiðingar það getur haft ef farið er yfir þau. Gildandi stefnur og ferlar sem fylgt er í slíkum málum eru einnig ávallt aðgengilegir og kynntir starfsfólki,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan Mál Margeirs Sveinssonar Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira