Að mála mynd af borg er allt annað en að byggja borg Einar G Harðarson skrifar 3. janúar 2024 08:01 Munurinn á rafmyntinni ONE, One Ecosystem (OES) og öðrum rafmyntum má líkja saman á þann hátt að mála mynd eða byggja borg. Venjuleg rafmynt er búin til af færum tölvuhönnuðum sem tekur þá þrjá til sex mánuði og er slíkt oft gert í bílskúr. Ef hönnunin er flóknari tekur hönnunin fáein ár með fjölda manna eftir því hvernig nota á myntina. Hægt er að búa til rafmynt fyrir eina verslun upp í mynt sem allir íbúar heims geta notað. Nokkur munur er á því. Margir fréttamiðlar hafa kallað ONE, SVINDL með stórum stöfum og upphrópunum. Jú, ONE er eins og að kaupa rafbíl árið 2016 en fá í raun árgerð 2024 í staðinn. Árið 2016 var ekki hægt að nýta bílinn (né hægt að nota ONE). Hvergi var hægt að hlaða rafmagn né var hægt að fá viðgerð fyrir bílinn. Hann varð því að vera inni í bílskúr. Þá vantaði alla innviði til að hægt væri að nota bíl af því tagi. Er sala rafbílsins þá svindl? Ef þú greiddir, segjum 50,000 kr., fyrir rafbílinn þá en núna er rafbíllinn hins vegar 10,000,000 kr. virði. Árið 2016 hrópaði fólk upp: „SVINDL, SVINDL!“ sem hafði keypt bíl (rafmynt) sem það gat ekki notað. En lang-, langflestir sáu fram í tímann. Hægt var að kaupa eina BTC (Bitcoin) á minna en einn bandaríkjadal árið 2016. Núna kostar ein BTC 42,233 US$ og stórfyrirtæki á borð við Black Rock eru að fjárfesta í BTC. En einnig eru stórir fjárfestar að fjárfesta í ONE myntinni. Venjulegar rafmyntir sem telja núna tugi þúsunda eru settar á markað eftir framleiðslu eins og mynd eftir listamann í von um að einhver kaupi. ONE myntin er byggð upp til að vera stöðugt hagkerfi en ekki hlutabréf sem hækka og lækka. Má þar nefna að þjónustan við ONE eigendur á sér stað allan sólarhringinn, um allan heim. Einnig er verið er að opna skrifstofur fyrir ONE eigendur víða. Þetta á ekki við um neina aðra rafmynt. Vörumarkaðurinn (Dealshaker) þar sem ONE er notað til að versla með stækkar ört. ONE er líka skóli, ferðaklúbbur, kauphöll, hjálparstarf o.fl. Eða með öðrum orðum: HAGKERFI. Hagkerfi byggir á mörgum stoðum og þá telst það stöðugt, ef það er nógu stórt. Þetta þekkja Íslendingar af íslensku krónunni sem byggir á litlu hagkerfi og fáum stoðum og er því óstöðug. Stöðugt hagkerfi. Uppbygging ONE hefur því beinst að því að byggja upp stórt hagkerfi sem er mun flóknara, erfiðara og er tímafrekara en að setja litla rafmynt á markað. Rafmyntin Libra sem stofnuð var af eiganda Facebook átti að verða hagkerfi eins og ONE. Libra var talin ógna hagkerfi Bandaríkjanna og Zuckerberg var þvingaður til að hætta við stofnun Libru. Til að undirbúa verk á borð við stofnun myntarinnar Libru voru lagðir til milljarðar dollara, að því komu Visa, Eurocard og margir af stærstu bönkum heims. Vegna andstöðu seðlabanka Bandaríkjanna, þingsins og fleiri aðila var hætt við framleiðslu myntarinnar. ONE er því eina myntin sem farið hefur þessa vegferð sem hefur verið bæði löng og ströng. Um þessar mundir fer að hilla undir að hagkerfi ONE sé orðið það sterkt og stöðugt að hægt sé að setja myntina á markað á sama máta og aðrar myntir í heiminum sem eru fljótandi og verða fyrir sveiflum, bæði upp og niður. Íslenska krónan hefur ekki farið varhluta af því. Ísland hefur hagkerfi sem styður við krónuna en það er bæði lítið, veikt og hefur fáar stoðir og sveiflast því mikið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Rafmyntir Einar G. Harðarson Mest lesið Kæru félagar í Sjálfstæðisflokki Snorri Ásmundsson Skoðun Kennarar verða að slá af launkröfum svo hægt sé að semja við þá! Ragnheiður Stephensen Skoðun Af hverju þegir Versló? Pétur Orri Pétursson Skoðun Að stefna í hæstu hæðir Einar Baldvin Árnason Skoðun Blóðmjólkum ekki náttúru Íslands Bjarni Bjarnason Skoðun Erum við að borða nóg af rauðu kjöti? Aron Skúlason ,Hildur Leonardsdóttir Skoðun Þögnin er ærandi Vigdís Gunnarsdóttir Skoðun Eldingar á Íslandi Gunnar Sigvaldason Skoðun Sterki maðurinn Bjarni Karlsson Skoðun Auðmjúkur forstjóri Isavia tekst á við forðunarhegðun Skúli Gunnar Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Að stefna í hæstu hæðir Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Kæru félagar í Sjálfstæðisflokki Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Eldingar á Íslandi Gunnar Sigvaldason skrifar Skoðun Sterki maðurinn Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Blóðmjólkum ekki náttúru Íslands Bjarni Bjarnason skrifar Skoðun Spörum með einfaldara eftirliti Friðrik Ingi Friðriksson skrifar Skoðun Carbfix greypir vandann í stein - málið verður skoðað, vegið og metið á opin og heiðarlegan máta Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Sigurður Freyr Sigurðarson skrifar Skoðun Kærleikurinn stuðar Árni Þór Þórsson skrifar Skoðun Svefn - ein dýrmætasta gjöfin sem þú getur gefið barninu þínu Stefán Þorri Helgason skrifar Skoðun Af skráningum stjórmálaflokka og styrkjum til þeirra Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Þögnin er ærandi Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Kennarar verða að slá af launkröfum svo hægt sé að semja við þá! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun „Leyfðu þeim“ aðferðin Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Af hverju þegir Versló? Pétur Orri Pétursson skrifar Skoðun Siðapostuli Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Óheftar strandveiðar Arthur Bogason skrifar Skoðun „Það er heilmikið fyrirtæki að vera manneskja,“ fullyrti Meistari Kjarval Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Hagsmunahallinn Breki Karlsson skrifar Skoðun Hvað unga fólkið á Íslandi ætti að vera að læra í vetur – og hlutverk gervigreindar í kennslustofunni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun 85 milljarðar króna? – segðu okkur meira Elfar Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Takk Vökudeild (nýburagjörgæslan) Guðmunda G Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Flóra er ekki fjölbreytni.... Starri Heiðmarsson skrifar Skoðun Rautt kjöt: Goðsagnir og vanþekking Rajan Parrikar skrifar Skoðun Almannafé til stjórnmálasamtaka Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Trump, trans og eitt titrandi smáblóm… Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Aðrar hliðar við að koma í heiminn Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Auðmjúkur forstjóri Isavia tekst á við forðunarhegðun Skúli Gunnar Sigfússon skrifar Skoðun Spörum í starfsmannakostnaði ríkisins Leifur Örn Leifsson skrifar Skoðun Áróður í boði SFS Elvar Friðriksson skrifar Sjá meira
Skoðun Carbfix greypir vandann í stein - málið verður skoðað, vegið og metið á opin og heiðarlegan máta Elliði Vignisson skrifar
Skoðun Kennarar verða að slá af launkröfum svo hægt sé að semja við þá! Ragnheiður Stephensen skrifar
Skoðun „Það er heilmikið fyrirtæki að vera manneskja,“ fullyrti Meistari Kjarval Árni Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað unga fólkið á Íslandi ætti að vera að læra í vetur – og hlutverk gervigreindar í kennslustofunni Sigvaldi Einarsson skrifar