Nákvæmlega 52 árum eftir krýningu hennar mun valdatíð Margrétar taka enda þann fjórtánda janúar og hinn 55 ára gamli Friðrik taka við stjórnartaumunum. En hver er krónsprinsinn?
Friðrik er í dag fjögurra barna faðir. Hann hefur verið áberandi í umræðu um umhverfismál á síðustu árum og talar fjögur tungumál.
Partýprins með dulnefni
Það er ólíkt þeirri mynd sem var máluð af Friðriki þegar hann var yngri. Snemma á tíunda áratugnum var hann álitinn vera eins konar partýprins, sem hefði gaman að því að aka um á hraðskreiðum sportbílum.
Glaumgosaímyndin breyttist þó um miðjan tíunda áratuginn þegar hann útskrifaðist frá háskólanum í Árósum með gráðu í stjórnmálafræði. Með því varð hann fyrsti meðlimur dönsku konungsfjölskyldunnar til að klára háskólagráðu.

Hann stundaði einnig nám í Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, þar sem hann var skráður undir dulnefninu Frederik Henriksen. Þar vísaði hann til nafns föður síns, hins franska Hinriks prins.
Líktist mörgæs
Friðrik sinnti herþjónustu hjá danska sjóhernum, og þar þótti hann standa sig með prýði. Þar hlaut hann viðurnefnið „Pingo“, en samkvæmt Daily Mail kom nafnbótin þegar blautgallinn hans fylltist af vatni á köfunaræfingum. Hann þótti líkjast mörgæs.
Árið 2010 hlaut hann titill sjóliðsforingja í danska sjóhernum, og í landhernum og flughernum ber hann titill ofursta.
Ímynd verðandi konungsins sem útivistarmanns styrktist enn frekar árið 2000 þegar hann tók þátt í fjögurra mánaða skíðaferð um Grænland. Friðrik hefur jafnvel þótt of djarfur eftir bæði bifhjóla-og sleðaslys.
„Ég vil ekki loka mig af í stórri höll. Ég vil vera ég sjálfur, manneskja,“ hefur verið haft eftir prinsinum. Hann hefur þannig gefið til kynna að hann muni halda frjálslegum lífsstíl sínum áfram eftir að hann tekur við krúnunni.

Vissi ekki að hún væri að tala við prins
Friðrik kynntist ástralskri eiginkonu sinni Maríu Donaldsson á bar í Sidney þegar hann sótti ólympiuleikana í Ástralíu árið 2000. Hún er lögfræðingur að mennt. Hún segist ekki hafa vitað það að Friðrik væri krónprins Danmerkur.
Því hefur verið haldið fram að Friðrik og María hafi gert allt í sínu valdi til að gefa fjórum börnum sínum eins hefðbundið uppeldi og hugsast gæti. Til að mynda hafi þau aðallega verið send í ríkisrekna skóla. Kristján elsti sonur þeirra og verðandi krónprins er átján ára gamall.
Í nóvember í fyrra var greint frá því í spænskum fjölmiðlum að Friðrik ætti í leynilegu ástarsambandi með mexíkósku athafnakonunni Genovevu Casanova.
Friðrik var sagður hafa eytt nótt með henni þegar hann heimsótti Spán í vetur. Á sama tíma var María í New York á fundi Sameinuðu þjóðanna.
Genoveva sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins og vísaði sögusögnunum á bug.
Verður ekki krýndur
Friðrik er eðlilega ólíkur móður sinni Margréti Þórhildi. Hann kann að meta rokktónlist og mætir oft á rokktónleika og tónlistarhátíðir. Þá er hann töluverður íþróttamaður sjálfur og þegar hann var fimmtugur stofnaði hann til víðavangshlaups í eigin nafni til styrktar góðgerðarmála í stað þess að boða til mikillar veislu. Hann á einnig sæti í ólympíunefndinni.
Það er ekki hefð fyrir krýningum í Danmörku líkt og í Bretlandi. Hann tekur við krúnunni á ríkisráðsfundi hinn 14. janúar þar sem móðir hans afsalar sér formlega krúnunni. Samkvæmt hefð tilkynnir forsætisráðherra síðan breytinguna af svölum Kristjánsborgarhallar.
Þegar Margrét tók við var kallað: Friðrik níundi er látinn, lengi lifi drottning Margrét önnur. Þetta er kallað þrisvar. En nú lifir drottningin og því velta menn fyrir sér hvernig tilkynningin verður orðuð.
Krúnuskiptin eru söguleg fyrir margt. Aldrei áður hefur konugur eða drottning afsalað sér krúnunni. Þá verður þetta í fyrsta skipti sem kona tilkynnir krúnuskiptin þegar Mette Frederiksen forsætisráðherra gerir það.
