Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég hef alltaf verið mikil morgunmanneskja og finnst gott að byrja daginn snemma. Ég ætla nú samt ekki að neita því að í vetrarmyrkrinu er aðeins hlýrra undir sænginni.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég er með fasta morgunrútínu heima og finnst gott að hafa tíma fyrir það. Svo er langbest ef ég næ að koma inn hreyfingu á morgnana. Við vinkonurnar erum duglegar að skipuleggja okkur saman, enda höfum við komist að því að það er miklu erfiðara að skrópa ef hinar eru að bíða eftir manni.“
Hvað í daglegu lífi fær þig alltaf til að hlæja jafn mikið?
Æ, það er svo margt sem fær mig til að hlæja. Það þarf nú ekki meira en að horfa á The Office, spila nýjasta jólaspilið, fylgjast með pabba á dansgólfinu eða spjalla um atburði gærkvöldsins við vinkonurnar.
Amma Kristrún sagði alltaf að hláturinn lengdi lífið og ég reyni að vera þeim megin í tilverunni.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Efst á baugi hjá mér núna, auðvitað fyrir utan skóla og vinnu, er stjórnarseta í UAK. Vorönn félagsins er að hefjast og undirbúningur fyrir opnunarviðburðinn í fullum gangi. Opnunarviðburðurinn er 24. janúar í Grósku og ber yfirskriftina: Forysta í breyttum heimi. Það er opinn viðburður, ókeypis inn og við fáum til okkar frábæra gesti, þær Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Rebekku Rún Jóhannesdóttur.
Helsta markmið UAK er að stuðla að jafnrétti, hugarfarsbreytingu og framþróun í íslensku samfélagi. Félagið skapar vettvang fyrir konur til að fræðast, hvetja og efla hver aðra. Það var svo sannarlega byrjunin á ótrúlegu ferðalagi að skrá mig í UAK. Ég hef kynnst þvílíkum kvenskörungum og kem út af hverjum viðburði full eldmóðs og innblásturs. Ég hvet þau sem hafa áhuga að kynna sér starfsemina og mæli auðvitað með því að ganga í félagið á heimasíðu UAK.
Mér finnst alltaf gaman þegar það er nóg að gera og það er ekki minna viðburðaríkt í vinnunni hjá KLAK þessa dagana. Við erum að keyra af stað Gulleggið, stærstu frumkvöðlakeppni landsins, sem hefst með Masterclass í Grósku í dag.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Undanfarið ár hef ég verið með marga bolta á lofti með háskólanáminu.
Eitt af því sem ég hef tileinkað mér á þessum tíma er að ganga alltaf með skrifblokk. Þegar mér líður eins og ég sé að drukkna í verkefnum, þá hefur það verið algjör „game changer" að skrifa öll verkefnin niður á blað og halda utanum framvindu þeirra þar.
En svo finnst mér líka góð hvatning, þegar verkefnin líta út fyrir að vera óyfirstíganleg, að ímynda mér að ég standi hinumegin við fjallið, horfi tilbaka og hugsi: Þetta hafðist!“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég ætla nú ekkert að ljúga því, að öll kvöld séu eins hjá mér. Ég reyni að vera spontant og er dugleg að stökkva í allskonar vitleysu með fólkinu mínu. Kvöldin eru því eins fjölbreytt og þau eru mörg, en svo kemur það nú fyrir að ég komi mér bara vel fyrir í sjónvarpssófanum. Annars finnst mér næs að enda daginn í kvöldsundi og vera komin í háttinn fyrir miðnætti.“