Í samtali við fréttastofu staðfestir Eiríkur Valberg, lögreglufulltrúi hjá miðlægri deild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, að umfangsmiklar aðgerðir hafi átt sér stað um klukkan átta í morgun. Hann segist ekkert geta gefið upp um hvers konar aðgerðir var að ræða en málið sé afar viðkvæmt og miklir rannsóknarhagsmunir undir.
Aðgerðum á vettvangi er lokið en DV greinir frá því að vettvangur hafi verið innsiglaður með lögregluborða.
Aðspurður segir Eiríkur að lögregla muni hugsanlega gefa frá sér tilkynningu vegna málsins síðar í dag.