Joselu skaut Madrídingum á toppinn 1. febrúar 2024 21:53 Joselu var allt í öllu í liði Real Madrid í kvöld. Mateo Villalba/Getty Images Joselu skoraði bæði mörk Real Madrid er liðið vann 2-0 útisigur gegn Getafe í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Með sigrinum skutust Madrídingar á topp deildarinnar. Joselu kom Madrídingum yfir strax á 14. mínútu eftir stoðsendingu frá Lucas Vazquez og staðan var því 1-0, Madrídingum í vil, þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Joselu var svo aftur á ferðinni á 56. mínútu þegar hann tvöfaldaði forystu Real Madríd eftir stoðsendingu frá Vinicius Junior og þar við sat. Niðurstaðan því 2-0 sigur Real Madrid sem nú trónir á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar mep 57 stig eftir 22 leiki, tveimur stigum meira en Girona sem situr í öðru sæti. Getafe situr hins vegar í tíunda sæti með 29 stig. Spænski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn