Celta Vigo er í bullandi fallbaráttu og þurfti að eiga við stjörnum prýtt lið Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Robert Lewandowski sá til þess að Celta verður áfram í botnbaráttunni.
Lewandowski kom Barcelona yfir undir lok fyrri hálfleiks en Iago Aspas jafnaði strax í upphafi þess seinni. Meðalaldur markaskora í þessum leik rétt í kringum 36 ár.
Allt stefndi í jafntefli en liðin fengu sex mínútur í uppbótartíma til að reyna að taka öll þrjú stigin. Þegar uppbótartíminn var svo gott sem á þrotum vildu Börsungar frá vítaspyrnu. Atvikið var skoðað í VAR og vítaspyrna dæmd sem áðurnefndur Lewandowski skoraði úr og tryggði Barcelona öll þrjú stigin.